Auðveldasti heimabakstur í heimi

Frábærar bollur sem þú undirbýrð kvöldinu áður og býður fjölskyldunni …
Frábærar bollur sem þú undirbýrð kvöldinu áður og býður fjölskyldunni upp á nýbakað morguninn eftir. mbl.is/Colourbox

Við elskum góðar bolluuppskriftir – en við elskum enn meira að borða afraksturinn. Hér er uppskrift að bollum sem þú getur undirbúið kvöldið áður og boðið fjölskyldunni upp á nýbakað morguninn eftir.

Auðveldar hafrabollur (12 stk)

  • 5 g ger
  • 3½ dl kalt vatn
  • 125 g haframjöl
  • 1 msk. hunang
  • 125 g rúghveiti
  • 125 g hveiti
  • 1 tsk. gróft salt
  • ½ msk. kaldpressuð rapsolía (til að smyrja formið)

Annað

  • Haframjöl til skreytingar – eins má nota hörfræ, sesamfræ, sólblómakjarna, saxaða graskerskjarna eða hnetur.

Aðferð:

  1. Hrærið gerið út í kalt vatnið og bætið haframjöli saman við ásamt hunangi, rúghveiti og hveiti.
  2. Hnoðið í 5 mínútur.
  3. Bætið salti saman við og haldið áfram að hnoða í nokkrar mínútur til viðbótar.
  4. Setjið plastfilmu yfir deigið og inn í ísskáp í 12-24 tíma.
  5. Smyrjið muffinsform með olíunni (álform með pláss fyrir 12).
  6. Dýfið höndunum eða skeið í kalt vatn og leggið einn klump af deigi ofan í hverja „holu“ í forminu.
  7. Stráið haframjöli eða öðru ofan á deigið og látið bollurnar hefast í sirka 1 tíma.
  8. Bakið við 225°C í 20-25 mínútur. Látið kólna á rist.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert