Kartöflumeðlæti sem klikkar aldrei

Kartöflusalat er fullkomið meðlæti með svo mörgum mat.
Kartöflusalat er fullkomið meðlæti með svo mörgum mat. mbl.is/Colourbox

Heimagert er allaf best – og það á sannarlega við í þessu tilviki. Einfalt og afar bragðgott kartöflusalat sem hentar með svo mörgum mat. Sannir kartöflusalatsáhugamenn vilja helst borða þetta beint upp úr skálinni eitt og sér.

Kartöflumeðlæti sem klikkar aldrei

  • 1 kg nýjar kartöflur
  • 3 dl sýrður rjómi
  • 1 msk. rifin piparrót
  • vorlaukur
  • salt og pipar
  • 2 stórir tómatar
  • ½ tsk. olía

Aðferð:

  1. Sjóðið kartöflurnar þar til mjúkar og látið alveg kólna.
  2. Saxið vorlaukinn niður, skerið tómatana í teninga og kartöflurnar í skífur.
  3. Smakkið sýrða rjómann til með fínt rifinni piparrót, salti og pipar.
  4. Veltið tómötum, köldu kartöflunum og söxuðum vorlauk saman við dressinguna.
  5. Leyfið salatinu að taka sig í sirka 30 mínútur áður en það er borið fram.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert