Lúxus-pítsan sem matgæðingarnir elska

Humarpítsa af allra bestu gerð.
Humarpítsa af allra bestu gerð. mbl.is/Snorri Guðmundsson

Fagmaðurinn í eldhúsinu, hann Snorri Guðmundsson, býður okkur upp á ómótstæðilega humarpítsu með klettasalati og hvítlauksolíu. Hann segir þess samsetningu vera lúxus bragðveislu fyrir næsta pitsakvöld.

Þessi uppskrift að pizzadeigi er svakalega einföld og skilar manni æðislegum pizzabotni en hún krefst smá þolinmæði þar sem deigið þarf að taka sig í 2 daga áður en pizzurnar eru bakaðar. Þú munt samt ekki sjá eftir því! En það er auðvitað líka í fínu lagi að nota tilbúið pizzadeig ef tíminn er af skornum skammti.

Snorri sem heldur úti síðunni Matur og myndir sem nálgast má HÉR.

Pitsan sem sprengir alla skala

  • 420 g brauðhveiti + smá meira til að vinna með
  • 10 g sykur
  • 7 g borðsalt
  • 7 g þurrger
  • 6 msk ólífuolía
  • 280 g vatn
  • 1 dós San Marzano tómatar
  • 1 tsk oregano þurrkað
  • 3 stk hvítlauksrif
  • 1 tsk hunang
  • 300 g humar (skelflettur og hreinsaður)
  • ½ lítill rauðlaukur
  • 5 g steinselja
  • 180 g mozzarella ostur (rifinn)
  • 1 sítróna
  • 20 g klettasalat
  • Parmesanostur, eftir smekk

Aðferð:

  1. Hitið vatnið í um 30-40 sek í örbylgjuofni þar til það er svipað heitt og notalegt bað.
  2. Setjið hveiti, sykur, salt og þurrger í matvinnsluvél og látið vélina ganga í stuttum hrinum í 4-5 skipti þar til allt hefur samlagast vel. Hellið vatni og 2 msk af ólífuolíu yfir hveitiblönduna og látið vélina ganga samfleytt í 15 sek þar til deigkúla hefur myndast. Látið vélina svo ganga í 15 sek til viðbótar.
  3. Stráið smá hveiti á borð og takið deigið úr matvinnsluvélinni. Hnoðið deigið í stutta stund og myndið úr því kúlu. Spreyið eða smyrjið stóra skál með olíu og færið deigið í skálina. Hyljið með matarfilmu og setjið í kæli í 2 sólarhringa.
  4. Takið deigið úr kæli 2 klst áður en baka á pizzurnar. Skiptið deiginu í tvennt og myndið úr því 2 kúlur. Færið kúlurnar í olíubornar skálar og hyljið með matarfilmu. Látið deigið jafna sig við stofuhita í amk 2 klst.
  5. Stillið ofn á 250°C með yfir og undirhita.
  6. Þerrið humarinn með eldhúspappír og steikið hann svo upp úr smá smjöri og pressuðu hvítlauksrifi, setjið humarinn á disk og geymið til hliðar.
  7. Setjið smá olíu í lítinn pott og stillið á miðlungshita. Pressið hvítlauksrif saman við og steikið í um 1 mín eða þar til hvítlaukurinn er farinn að ilma.
  8. Kremjið San Marzano tómatana með höndunum og bætið út í pottinn ásamt vökvanum úr dósinni, oregano  og 1 tsk af hunangi. Náið upp suðu og lækkið svo hitann svo það malli hraustlega í pottinum. Látið malla í um 15 mín og smakkið svo til með salti.
  9. Setjið bökunarplötu inn í ofninn til þess að hitna á meðan botnarnir eru mótaðir.
  10. Notið hendurnar til þess að fletja botninn út í um 25 cm hring. Best er að vinna út frá miðju deigsins í átt að kantinum og reyna að hlífa um 2 cm af kantinum við sem mestu hnjaski, en þannig er gasinu sem hefur myndast yfir síðustu 2 daga ýtt út í kantinn sem verður til þess að hann lyftist mun betur.
  11. Smyrjið sósu á botninn og rífið mozzarellaost yfir. Dreifið humar yfir pizzuna ásamt rauðlauk og bakið svo í næstefstu grind í ofni í um 8-10 mín.
  12. Setjið 4 msk af ólífuolíu í litla skál og pressið 1 hvítlauksrif saman við. Hitið í nokkrum stuttum hrinum í örbylgjuofni þar til hvítlaukurinn er farinn að ilma.
  13. Saxið steinselju og rífið sítrónubörk (varist að taka hvíta undirlagið með því það er beiskt á bragðið). Dreifið steinselju og sítrónubörk yfir pizzuna þegar hún kemur úr ofninum ásamt smá salti, ríflegu magni af parmesan, góðri lúku af klettasalati og svolítilil hvítlauksolíu.

- - -

Fylgstu með Matarvefnum á Instagram og Facebook. Endalaus ævintýri, hugmyndir, skemmtilegir leikir og allt það heitasta heita...

Svo megið þið endilega tagga okkur á Instagram þegar þið eruð að elda eitthvað spennandi @matur.a.mbl

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert