Espresso martini að hætti barþjónsins

Espresso martini er einn sá allra vinsælasti í gegnum tíðina.
Espresso martini er einn sá allra vinsælasti í gegnum tíðina. mbl.is/Colourbox

Klassíski drykkurinn espresso martini er víða blandaður á börum bæjarins, en hér bjóðum við upp á uppskrift að hætti barþjónsins – og kynnum ykkur í leiðinni fyrir sögu drykksins sem er afar áhugaverð.

Það var árið 1983 sem að drykkurinn var fundinn upp og það af barþjóninum Dick Bradsell, en hann er svokallað „legend“ í heimi barþjóna í London. Kvöld eitt settist ung fyrirsæta á barstólinn hjá honum sem kvartaði yfir því að vera mjög þreytt eftir vikuna og bað um kokteil sem myndi hressa hana við. Dick Bradsell blandaði kokteil sem innihélt espresso, kaffilíkjör og vodka og kallaði hann espresso martini. Og þar með var drykkurinn kominn í sögubækurnar! 

Espresso martini að hætti barþjónsins

  • 3 cl espresso
  • 1 cl sykursýróp
  • 2 cl kahlua
  • 4 cl absolut vodka
  • 3 kaffibaunir
  • Ísmolar

Aðferð:

  1. Kælið kokteilglasið.
  2. Setjið öll hráefnin í kokteil hristarann og hristið hressilega með ísmolum í 8 sekúndur þannig að súrefnið nái að bindast og útkoman verður ljúffeng froða sem einkennir góðan espresso martini.
  3. Hellið kokteilinum í gegnum sigti (fine strainer) og yfir í frosna kokteilglasið.
  4. Skreytið með 3 kaffibaunum og berið fram.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert