Löðrandi léttur aspasóður til Helga Björns

Ljósmynd/Ragnar Freyr Ingvarsson

Elsku læknirinn okkar í eldhúsinu er hvergi nærri að baka dottinn enda engin ástæða til. Hér kemur enn ein alslemman til heiðurs Helga Björns.

Ástaróður til Helga Björns 2: Aspassouffle með ferskum aspas og Västerbottenosti

Fyrir sex

  • ½ búnt af ferskum aspas
  • 4 egg
  • 35 g smjör
  • 35 hveiti
  • 300 ml mjólk
  • 4 msk. rifinn Västerbotten ostur
  • ½ hvítlauksgeiri
  • smjör
  • brauðmylsna

Aðferð

  1. Skerið aspasinn í bita og sjóðið í söltuðu vatni í tvær mínútur. Kælið í ísvatni og leggið svo aspasinn til hliðar.
  2. Útbúið bechamél sósu með því að bræða 35 g af smjöri í potti og hræra vel saman og mynda smjörbollu. Bæta kaldri mjólk saman við og hita varlega. Sósan þykknar þegar hún hitnar. Bætið svo ostinum saman við og bræðið hann í heitum jafningum.
  3. Aðskiljið eggjahvíturnar frá eggjarauðunum.
  4. Setjið bechamélsósuna í blandara og bætið við aspasnum, hálfum hvítlauksgeira, eggjarauðum, salti og pipar. Blandið vel saman. Færið blönduna yfir í skál.
  5. Þeytið eggjahvíturnar þangað til að þær eru dúnmjúkar - eins og fallegt ský á himni. Ekki stífþeyta. Bætið þeim saman við aspasbætta bechamélblönduna, varlega þannig að þið sláið ekki loftið úr eggjahvítunum.
  6. Smyrjið lítil eldföst mót með mjúku smjöri og setjið brauðmylsnu innan á mótin. Hellið því næst souffleblöndunni yfir í mótin.
Ljósmynd/Ragnar Freyr Ingvarsson
Ljósmynd/Ragnar Freyr Ingvarsson
mbl.is

Stöndum saman

Við hjá Árvakri viljum vekja athygli á því sem vel er gert á þessum erfiðu tímum. Ef þú ert með góða sögu af fyrirtækjum og einstaklingum sem eru að gera gott, sendu okkur ábendingu á netfangið stondumsaman@mbl.is.

Stöndum saman

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert