Vanessa Bryant fékk senda óvænta gjöf

Körfuknattleiksmaðurinn Kobe Bryant ásamt dóttur sinni Gianna - en þau …
Körfuknattleiksmaðurinn Kobe Bryant ásamt dóttur sinni Gianna - en þau létust bæði í þyrluslysi í janúar sl. mbl.is/Ethan Miller/Getty

Fyrrverandi liðsfélagi Kobe Bryant sendi eiginkonu hans hjartnæma gjöf í vikunni, í tilefni af 14 ára afmæli Giönnu, dóttur þeirra sem lést í þyrluslysi ásamt föður sínum í lok janúar sl.

Vanessa Bryant, eiginkona Kobe Bryant heitins, fékk senda glæsilega afmælisköku á afmælisdag Giönnu heitinnar. En það voru Pau Gasol, fyrrverandi leikmaður Los Angeles Lakers, og konan hans Catherine McDonnell sem sendu kökuna. Kakan var á tveimur hæðum, hvít og gyllt á lit með útskornum fjöðrum og fiðrildum. Á kökunni stóð „Happy birthday Gigi“ og neðst á borða stóð gælunafnið hennar „Mambacita“.

Pau Gasol og eiginkona hans birtu einnig mynd á samfélagsmiðlunum á sjálfan afmælisdaginn, þar sem þau haldast í hendur með rauð armbönd til heiðurs Giönnu – með yfirskriftinni „Happy birthday Gigi, missing you an extra lot today“. En þau hjónin sendu Vanessu Bryant einnig stóran blómvönd með rauðum rósum nokkrum vikum áður er þau Vanessa og Kobe hefðu fagnað 19 ára brúðkaupsafmælinu sínu. 

Glæsileg kakan sem Vanessa Bryant fékk senda í tilefni að …
Glæsileg kakan sem Vanessa Bryant fékk senda í tilefni að 14 ára afmæli dóttur sinnar. mbl.is/Vanessa Bryant
Pau Gasol, fyrrum leikmaður Los Angeles Lakers og konan hans …
Pau Gasol, fyrrum leikmaður Los Angeles Lakers og konan hans Catherine McDonnell sendu kökuna og birtu þessa mynd á Twitter á afmælisdag Gianna. mbl.is/Twitter
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert