Ísterta með þremur lögum af súkkulaði

Súkkulaðidraumur í ísformi!
Súkkulaðidraumur í ísformi! mbl.is/Anne au Chocolat

Hér er ein sjúklega girnileg uppskrift fyrir okkur sem elskum súkkulaði. Dökkt, ljóst og hvítt súkkulaði skipa hér stóran sess í ísbombu ársins.

Ísterta með þremur lögum af súkkulaði

  • 40 g dökkt súkkulaði
  • 40 g hvítt súkkulaði
  • 40 g dulcey-súkkulaði, 32% ljóst
  • 3 eggjahvítur
  • 250 ml rjómi
  • 3 eggjarauður
  • 1 vanillustöng
  • 1 msk súkkulaðiperlur til skrauts

Aðferð:

  1. Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði í skál eða örbylgjuofni.
  2. Þeytið eggjahvíturnar að marens með helmingnum af sykrinum. Þeytið rjómann mjúkan (passið að þeyta hann ekki of mikið).
  3. Pískið eggjarauðurnar þar til ljósar og léttar með afganginum af sykrinum og vanillukornum.
  4. Veltið marensblöndunni varlega í eggjarauðurnar og því næst rjómanum saman við. Síðan kemur mestallt súkkulaðið varlega út í – og blandið saman með sleif.
  5. Hellið ísblöndunni í lítil form og skreytið með afganginum af súkkulaðinu og jafnvel súkkulaðiperlum eða -spæni. Eins hægt að skreyta með karamellusósu og hnetum.
  6. Setjið í frysti í fjóra tíma áður en borið fram.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert