Rjómaostar eru í miklu uppáhaldi hjá matgæðingum landsins, hvort sem er í matargerð, á beyglur og brauð nú eða á ostabakkann.
Eflaust munu margir gleðjast í næstu búðarferð því nú eru komnir á markað nýir bragðbættir rjómaostar frá MS. Fimm tegundir eru í boði, hver annarri betri.
Hreinn rjómaostur og rjómaostur með pipar eru endurbættar útgáfur rjómaosta sem áður voru á markaði en hinar þrjár tegundirnar eru glænýjar. Þetta eru rjómaostur með grillaðri papriku og chilli, rjómaostur með karamellíseruðum lauk og rjómaostur með graslauk og lauk.
Ljóst er að matgæðingar landsins munu fara mikinn í tilraunamennsku næstu vikur enda hljóma nýju ostarnir hreint stórvel og passa við hvaða tilefni sem er, hvort heldur ofan á kex, í sósur, í ofnbakaða rétti, á pítsur og svo auðvitað í sósurnar.