Sumarleg marengskaka með hindberjarjóma

Ljósmynd/Berglind Guðmundsdóttir

Hér erum við með einstaklega sumarlega og skemmtilega marengsköku frá Berglindi Guðmunds á GRGS.is. Tilvalin í garðveisluna eða sumarafmælið... eða bara á fallegum sumardegi.

Sumarleg marengskaka með hindberjarjóma

  • 3 eggjahvítur
  • 150 g sykur
  • 150 g möndlumjöl
  • 1 poki hindber, frosin
  • 3 dl rjómi

Leiðbeiningar

  1. Þeytið eggjahvíturnar þar til þær eru farnar að stífna. Bætið sykri smátt saman við og hrærið áfram. Haldið áfram að hræra þar til eggjahvíturnar eru orðnar stífar.
  2. Setjið tvær handfyllir af hindberjum og möndlumjöli saman við rjómann og blandið varlega saman við með sleif.
  3. Látið marengsinn á bökunarpappír og bakið í 175°C heitum ofni í 40 mínútur.
  4. Takið úr ofni og kælið kökuna.
  5. Þeytið rjómann og stappið afganginn af hindberjunum og bætið saman við rjómann.
  6. Þegar botninn hefur kólnað setjið hindberjarjómann þar á og látið nokkur ber þar yfir.

- - -

Fylgstu með Matarvefnum á Instagram og Facebook. Endalaus ævintýri, hugmyndir, skemmtilegir leikir og allt það heitasta heita...

Svo megið þið endilega tagga okkur á Instagram þegar þið eruð að elda eitthvað spennandi @matur.a.mbl

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert