Djúsí ofnbakað pasta

Þessi pastauppskrift skorar fullt hús stiga.
Þessi pastauppskrift skorar fullt hús stiga. mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir

Girnilegur og einstaklega góður pastaréttur með nautahakki og dásemdar ostasósu – a la Hildur Rut. Rétturinn kallast „million dollar spaghetti“ en í þessari uppskrift er notast við penne pasta. Hildur Rut segir réttinn slá einnig í gegn hjá yngri kynslóðinni.

Djúsí ofnbakað pasta (fyrir 4-6)

  • 500 g nautahakk
  • 250 g tómatpassata
  • 2-3 msk tómatpúrra
  • ½ laukur
  • 2 hvítlauksrif, pressuð
  • Kjötkraftur
  • Salt og pipar
  • 400 g penne pasta frá De Cecco
  • 3 egg
  • 4 msk. steinselja
  • 1½ dl Parmigiano-Reggiano
  • 4 msk smjör
  • 2 dl kotasæla
  • 1 Philadelphia ostur
  • Rifinn mozzarella ostur

Aðferð:

  1. Byrjið á að skera laukinn smátt og steikið hann við vægan hita. Bætið nautahakkinu út í og steikið.
  2. Blandið tómatpassata, hvítlauk og kjötkrafti saman við nautahakkið. Saltið og piprið eftir smekk.
  3. Sjóðið penne pasta eftir leiðbeiningum á pakkningu.
  4. Skerið steinselju og rífið Parmigiano. Þeytið eggin, steinseljuna og Parmigiano saman í skál.
  5. Sigtið vatnið frá pastanu og setjið aftur í pottinn.
  6. Bætið smjöri og eggjablöndu út í og hrærið. Hrærið kotasælu og rjómaosti út í og setjið pastablönduna í eldfast mót.
  7. Smyrjið nautahakkinu ofan á pastað og stráið mozzarella osti yfir.
  8. Bakið í 15-20 mínútur við 180° eða þar til osturinn er bráðnaður. Gott að bera fram með fersku salati.
mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert