Krakkavænn karrýfiskur

mbl.is/Berglind Hreiðarsdóttir

Í dag er ekta veður til að bjóða upp á góðan karrýfiskrétt sem krakkarnir elska. Það er nefnilega eitthvað við karrý sem allir elska og því er þetta einn af þessum réttum sem geta ekki klikkað.

Það er Berglind Hreiðars á Gotteri.is sem á heiðurinn að þessari snilld eins og hennar er von og vísa.

Krakkavænn karrýfiskur

Fyrir 4-5 manns

  • 800 g þorskhnakkar
  • 30 g smjör
  • ½ laukur
  • 1 msk. karrý
  • Salt, pipar, cheyenne-pipar eftir smekk
  • 1 msk. fiski- eða humarkraftur
  • 500 ml rjómi frá Gott í matinn
  • 100 ml súrmjólk
  • Maizena-mjöl
  • Rifinn gratínostur frá Gott í matinn

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 180°C.
  2. Skolið og þerrið fiskinn, skerið hnakkana í 2-3 cm bita og raðið í botninn á eldföstu móti, kryddið með salti og pipar.
  3. Saxið laukinn mjög smátt (þannig finna börn ekki fyrir því það sé laukur en hann gefur svo gott bragð í réttinn).
  4. Steikið laukinn upp úr smjörinu við meðalhita þar til hann mýkist og kryddið með karrý, salt og pipar.
  5. Bætið þá rjóma, krafti og súrmjólk á pönnuna, náið upp suðunni og þykkið með maizena-mjöli.
  6. Kryddið til með cheyenne-pipar, salti, pipar og krafti eftir smekk.
  7. Hellið yfir fiskinn í fatinu, setjið vel af rifnum gratínosti yfir og bakið í um 30 mínútur.
  8. Gott er að bera fiskinn fram með soðnum hrísgrjónum.
mbl.is/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert