Ómótstæðilegt kjúklingasalat sem hittir í mark

Geggjað kjúklingasalat að hætti Snorra hjá Mat og myndum.
Geggjað kjúklingasalat að hætti Snorra hjá Mat og myndum. mbl.is/Matur & myndir

Þetta brakandi ferska kjúklingasalat er það stórkostlegt að Snorri hjá Mat og myndum segir að það muni fá alla þá sem ekki eru mikið fyrir salöt til að skipta um skoðun.

Hér býður hann okkur upp á brakandi ferskt kjúklingasalat með avocado, mangó og lárperu, ásamt hunangs-lime-dressingu. „Mér þykir vera algjört lykilatriði að nota salat sem er stökkt og safaríkt eins og til dæmis romaine eða íssalat því þessar tegundir halda sér stökkum og ferskum með dressingunni,“ segir Snorri.

Salatið sem fær þig til að skipta um skoðun

  • 400 g kjúklingalæri (skinn- & beinlaus)
  • 1,5 msk miðausturlenskt kjúklingakrydd / Kryddhúsið
  • 2 msk. límónusafi
  • 4 msk. ólífuolía
  • 1 msk. hunang
  • 2 msk. smátt saxaður kóríander
  • 1 lítið hvítlauksrif
  • 1 avocado
  • 1 mangó
  • 120 g sólskinstómatar
  • ½ lítill rauðlaukur
  • 4 stk. radísur
  • 5 msk. ristuð graskersfræ
  • 100 g ferskt salat / t.d. romaine og/eða íssalat
  • Spírur eftir smekk / t.d. radísuspírur

Aðferð:

  1. Setjið kjúklingalæri, miðausturlenskt kjúklingakrydd og 1,5 tsk. af flögusalti í skál með skvettu af olíu og blandið vel saman. Látið marinerast í 30 mín.
  2. Stillið ofn á 200° með blæstri.
  3. Dreifið kjúklingalærunum yfir ofnplötu með bökunarpappír og bakið í miðjum ofni í 25 mín. eða þar til kjúklingurinn er fulleldaður og búinn að brúnast fallega. Eða grillið á 200°C heitu grilli í um 5-6 mín. á hvorri hlið.
  4. Setjið límónusafa, ólífuolíu, eitt lítið pressað hvítlauksrif, hunang, saxaðan kóríander og smá salt í litla krukku með loki eða tóman hreinan kryddstauk með loki og hristið duglega þangað til allt hefur blandast saman og falleg dressing hefur myndast.
  5. Skerið mangó og tómata í bita, sneiðið avocado, rauðlauk og radísur. Skerið kjúklingalærin í bita.
  6. Rífið/skerið salat eftir smekk og veltið upp úr helmingnum af dressingunni. Skiptið salatinu á milli skála og toppið með restinni af hráefnunum og dreypið restinni af dressingunni yfir eftir smekk.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert