Toblerone-ostakaka með Oreo-botni

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

Í dag er fullkominn ostakökudagur og því megum við til með að deila þessari stórkostlegu uppskrift frá Berglindi Hreiðars á Gotteri.is.

Ef það er eitthvað sem klikkar aldrei þá er það góð ostakaka...

Súkkulaðiostakaka

Botn

  • 1 pk. Oreo-kex (16 kökur)
  • 70 g brætt smjör

Aðferð:

  1. Setjið kexið í matvinnsluvél/blandara og myljið vel niður.
  2. Setjið bökunarpappír í botninn á um 20 cm smelluformi og spreyið það síðan að innan með PAM (matarolíuspreyi).
  3. Hrærið smjörinu saman við og þjappið kexblöndunni í botninn á smelluforminu, kælið á meðan annað er útbúið.

Ostakaka

  • 500 g Philadelphia-rjómaostur við stofuhita
  • 160 g sykur
  • 2 msk. Cadbury-bökunarkakó
  • 3 gelatínblöð (+ 60 ml vatn)
  • 230 g brætt Toblerone
  • 2 tsk. vanilludropar
  • 100 g Oreo Crumbs með kremi/saxað Oreo-kex
  • 250 ml þeyttur rjómi

Aðferð:

  1. Leggið gelatínblöð í bleyti í köldu vatni í um 5 mínútur. Hitið þá 60 ml af vatni í potti og vindið þau út í, eitt í einu, og hrærið vel á milli, hellið yfir í skál þegar blöðin eru uppleyst og leyfið að standa á meðan annað er útbúið.
  2. Bræðið Toblerone og leggið til hliðar.
  3. Þeytið saman sykur og rjómaost og bætið bökunarkakói saman við og blandið vel.
  4. Því næst fer brætt Toblerone, gelatínblanda og vanilludropar saman við, blandið vel saman og skafið niður á milli.
  5. Vefjið þeytta rjómanum varlega saman við og að lokum Oreo Crumbs, hellið yfir botninn og kælið í að minnsta kosti 4 klukkustundir eða yfir nótt.

Skreyting

  • 350 ml þeyttur rjómi
  • Cadbury-bökunarkakó
  • Falleg blóm, Toblerone, Oreo eða annað sem ykkur dettur í hug

Aðferð:

  1. Setjið þeytta rjómann í sprautupoka með um 1 cm sverum hringlaga stút og sprautið bústnar „doppur“ yfir allan toppinn.
  2. Sigtið bökunarkakó yfir allt saman og skreytið að vild.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert