Elskaði samlokuna og fékk uppskriftina hjá kokkinum

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

Berglind Hreiðars á Gotteri.is gerði sér ferð til Vestmannaeyja og varð hugfangin af humarloku sem hún fékk á Einsa kalda. Hún hafði samband við veitingastaðinn og fékk uppskriftina sem hún býður lesendum upp á hér. Hún segir útkomuna hafa verið himneska og hvetur alla til að prófa.

„Það á reyndar að vera frisée-salat á toppnum en eftir leit í fjórum verslunum gafst ég upp og lét veislusalat duga, það setur samt mikinn svip á lokuna að hafa frisée salat svo ég myndi klárlega mæla með því að nota það þó svo káltegund hafi lítil áhrif á lokabragðið.

Bragðlaukarnir fá heldur betur veislu í þessari samloku og samanstendur hún af hinum ýmsu hráefnum og mismunandi áherslum en útkoman er alveg upp á 10!“

Humarloka Einsa kalda

Uppskrift fyrir 4 samlokur

Útbúið paprikusalsa og lime-majónes, skerið grænmeti og smjörsteikið humarinn áður en að samsetningu kemur.

  • 12 þunnar ljósar súrdeigsbrauðsneiðar (3 í hverja loku, gott að kaupa heilt brauð og skera sjálfur)
  • Cheddar-ostasósa frá Old el Paso
  • 8 sneiðar parmaskinka frá Casale
  • Paprikusalsa (sjá uppskrift hér að neðan)
  • 600 g skelflettur humar
  • Smjör, salt, pipar og hvítlauksduft (fyrir humarinn)
  • Lime-majónes (sjá uppskrift hér að neðan)
  • Klettasalat
  • Frisée-salat
  • 1 ferskt chili, skorið í þunnar sneiðar
  • ½ granatepli
  • 3 x vorlaukur í sneiðum

Súrdeigsbrauðsneiðarnar eru grillaðar í stutta stund áður en lokan er sett saman.

Neðsta sneiðin er smurð með cheddar-ostasósu, 2 sneiðar af parmaskinku settar þar ofan á og þar á eftir paprikusalsa (kúfuð matskeið á hverja loku).

Hér kemur næsta brauðsneið og ofan á hana fer smjörsteiktur humar sem búið er að hræra saman við lime-majónes ásamt klettasalati.

Að lokum kemur 3ja brauðsneiðin og hún er smurð með lime-majónesinu og toppuð með frisee-salati, chili-sneiðum, granateplafræjum og vorlauk.

Paprikusalsa

  • 1 x rauð paprika
  • 1 x rauðlaukur
  • 2 x tómatur (kjarnhreinsaðir)
  • 4 x sólþurrkaðir tómatar
  • 6 x Til hamingju döðlur
  • 1 msk. söxuð steinselja
  • Salt og pipar eftir smekk
  • Ólífuolía til steikingar

Skerið allt hráefnið í þunna strimla og steikið upp úr ólífuolíunni stutta stund.

Lækkið þá hitann og leyfið að malla í um 20 mínútur og hrærið reglulega í á meðan.

Lime-majónes

  • 200 g Hellmann‘s-majónes
  • 1 lime (safi og börkur)

Hrærið vel saman og geymið í kæli.

Á Einsa kalda er hins vegar notað svo kallað Yuzu-majónes en það er japanskt majónes og Yuzu-safi en yuzu er sítrusávöxur. Að sjálfsögðu er hægt að taka þetta alla leið ef þið finnið þetta hráefni.

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert