Heimabökuð humarpítsa fyrir lúxúsnagga

Ljósmynd/Linda Ben

Búið ykkur undir að lenda í himnaríki. Hér erum við með dásamlega frábæra pítsu úr smiðju Lindu Ben sem hún segir að sé algjört æði.

„Það besta við að gera humarpizzu heima er að þá ræður maður nákvæmlega hversu mikið af humri er sett á pizzuna. Þessi humarpizza fagnar einfaldleikanum sem mér finnst alltaf best þegar notuð eru svona góð hráefni eins og humar. Hvítlaukur, mosarella, humar og gott rauðvín, það getur bara ekki klikkað!

Heimabökuð humarpizza

  • 125 ml volgt vatn
  • 1 msk. olífu olía
  • 3 ½ dl hveiti
  • 1 tsk. þurrger
  • 1 tsk. salt
  • Hvítlauksolía
  • Rifinn ostur með hvítlauk
  • Ferskar mosarella perlur
  • 200 g skelflettir humarhalar
  • 2 hvítlauksgeirar
  • ¼ tsk. þurrkað chili krydd
  • 2 msk. ólífu olía
  • Pizza kryddblanda (eða oreganó)
  • Fersk steinselja (sem skraut, má sleppa)

Aðferð:

  1. Takið humarhalana úr frosti séu þeir frosnir.
  2. Setjiði gerið út í vatnið og hrærið saman.
  3. Blandiði hveiti og salt saman í skál.
  4. Hellið gerblöndunni út í hveitið með hrærivélina í gangi.
  5. Bætið ólífu olíunni útí og hnoðið saman þangað til gott pizzadeig hefur myndast, það á ekki að vera of klístað en auðvelt að hnoða það.
  6. Leyfið deiginu að hefast í a.m.k 2 klst.
  7. Stilltu ofninn á 240°C og undir&yfir.
  8. Setjið humarhalana í skál, rífið hvítaukinn út á, kryddið með þurrkuðu chili kryddi og setjið olífu olíu yfir, blandið öllu saman.
  9. Fletjið pizzadeigið út, setjið vel af hvítlauksolíu á botninn, rifinn ost og ferskar mosarella perlur.
  10. Setjið humarinn á pizzuna og kryddið með pizzakryddi.
  11. Bakið inn í ofni þar til osturinn er orðin gullinbrúnn.
  12. Skreytið með ferskri steinselju (má sleppa)
Ljósmynd/Linda Ben
Ljósmynd/Linda Ben
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert