Pítsubotninn sem er sagður byltingarkenndur

Viggó Vigfússon á Blackbox.
Viggó Vigfússon á Blackbox.

Þær gleðifregnir berast nú þeim sem forðast kolvetni eins og heitan eldinn að Blackbox Pizzeria hefur þróað nýjan pítsubotn sem er einstaklega hitaeininga- og kolvetnasnauður.

Botninn inniheldur 40% blómkál og þrátt fyrir að vera hitaeinigasnauður er hann samt einstaklega bragðgóður að sögn Viggós Vigfússonar, eins eigenda og stofnenda Blackbox.

„Við höfum alltaf lagt upp með að nota betri hráefni en gengur og gerist á markaðnum. Pizzusósan okkar er gerð á staðnum úr ítölskum plómutómötum, hráskinkan kemur í heilum lærum og er skorin á staðnum í ítalskri skurðarvél og mozzarella-osturinn okkar er ferskur og handrifinn á pizzurnar. Súrdeigsbotninn okkar er eftir ítalskri uppskrift og stendur í kæli hjá okkur í þrjá daga til að ná fullri hefun og er svo bakaður í 400°C heitum steinofni,“ bætir Viggó við.

Blómkál nýtur sívaxandi vinsælda enda afar hollt og bragðgott, og lágt í hitaeiningum og kolvetnum. „Þessi uppskrift finnst mér mögnuð að því leytinu til að þú færð sanna og góða pizzaupplifun. Það er kröst, bit og bragð sem kemur saman og gerir þetta að frábærum valkosti,“ segir Viggó. „Nýi blómkálsbotninn er frábær viðbót við matseðilinn á Blackbox og alveg ótrúlega bragðgóður.“

Fréttin hefur verið uppfærð.

Nýi botninn inniheldur 40% blómkál og er bæði kolvetna- og …
Nýi botninn inniheldur 40% blómkál og er bæði kolvetna- og hitaeiningasnauður.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert