Enchiladas af allra bestu gerð

Við elskum góðar mexíkóveislur og þetta enchiladas er með því …
Við elskum góðar mexíkóveislur og þetta enchiladas er með því betra. mbl.is/Colourbox

Hér er ein allra besta enchiladas-uppskrift sem þú munt finna á netinu í dag. Mexíkóskur kvöldmatur eins og hann gerist bestur.

Enchiladas af allra bestu gerð

  • 250 g hveiti
  • 2 egg
  • 2 msk. ólífuolía
  • Salt og pipar
  • 2,5 dl mjólk
  • 2 dl vatn
  • Olía til steikingar

Fylling og sósa

  • 500 g spínat
  • 250 g ricotta
  • 2 egg
  • 100 g rifinn parmesan
  • Salt og pipar
  • 250 g hakkaðir tómatar
  • 3 msk. balsamico
  • 2 msk. þurrkað óreganó
  • Salt og pipar
  • 125 g ferskur mozzarella

Aðferð:

  1. Setjið hveiti í skál, bætið eggi, olíu, salti og pipar saman við. Því næst mjólk og vatni. Pískið saman í deig og látið standa í 30 mínútur.
  2. Hitið olíu á pönnu og bakið pönnukökurnar þar til gylltar á lit.
  3. Hitið spínatið á pönnu og hellið vatninu af. Saxið spínatið og blandið saman við ricotta, egg og rifinn parmesan. Kryddið með salti og pipar.
  4. Hitið ofninn á 180°. Skiptið spínatfyllingunni á pönnukökurnar og rúllið þeim upp. Leggið pönnukökurnar í eldfast mót.
  5. Hrærið tómötunum saman við 2 msk. af ólífuolíu, balsamico og 1 msk. af þurrkuðu óreganó. Kryddið með salti og pipar.
  6. Setjið tómatsósublönduna jafnt ofan á hverja pönnuköku og dreifið mozzarella yfir. Kryddið með 1 msk. óreganó og dreypið ólífuolíu yfir allt.
  7. Bakið í ofni í 20 mínútur. Berið fram með góðu salati eða brauði.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert