Lakkrís-skyrkaka með brúnkökubotni

„Lakkrís-skyrkaka með brownie botni er alveg stórkostlega góð kaka,“ segir Linda Ben um þessa köku, sem hún segir að sé bæði einföld og fljótleg. „Frá því að ég smakkaði nýja lakkrís- og súkkulaðiskyrið frá Örnu hefur mig dreymt um að nota það í skyrköku. Þessi kaka er allt sem mig dreymdi um og gott betur en það. Þetta er ein af þessum kökum þar sem það er eiginlega ekki hægt að leggja gaffalinn frá sér.

Byrjað er á því að smella í brúnkökubotninn, ég ákvað að nota Ghirardelli-brownie mix sem fæst í Costco en mér finnst það stórgott. Að sjálfsögðu er hægt að gera botninn frá grunni líka. Skyrkakan sjálf er ótrúlega einföld að gera, maður einfaldlega stífþeytir rjómann, blandar skyrinu saman við og lakkrísnum.

Lakkrís-skyrkaka með brúnkökubotni

  • Brownie mix
  • 200 g súkkulaði- og lakkrísskyr frá Örnu Mjólkurvörum
  • 300 g rjómi
  • 3 msk. flórsykur
  • 2 matarlímsblöð
  • 200 g lakkrískurl
  • 50 g súkkulaði
  • Fersk brómber

Aðferð:

Útbúið brúnkökubotninn samkvæmt leiðbeiningum, bakið í u.þ.b. 23 cm hringformi. Kælið botninn vel í ísskáp. Leggið matarlímsblöðin i kalt vatn.

Stífþeytið rjómann. Hrærið skyrið varlega saman við rjómann með sleikju og sigtið flórsykurinn út í, hrærið varlega saman.

Setjið 100 g af lakkrískurlinu út í rjómablönduna og blandið saman.

Takið matarlímið upp úr vatninu og kreistið mesta vatnið af. Bræðið matarlímið yfir vatnsbaði (setjið vatn í pott og sjóðið, setjið aðra skál ofan á pottinn og bræðið matarlímið þannig). Blandið matarlíminu hratt saman við rjómablönduna og setjið á brúnkökubotninn, geymið í ísskáp í u.þ.b. 30 mín.

Skreytið kökuna með restinni af lakkrískurlinu, skerið súkkulaði með flysjara yfir kökuna og raðið brómberjunum á kökuna.

Nákvæmt aðferðarmyndband er að finna á Instagram.com/lindaben í Lakkrískaka highlights.

Ljósmynd/Linda Ben
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert