Taílenska súpan sem sögð er himnesk

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

Góð súpa á alltaf vel við og þessi hér kemur úr smiðju Berglindar Hreiðars á Gotteri.is en Berglind gerði víðreist hér um árið og fór meðal annars til Tælands þar sem hún heillaðist af matarmenningu heimamanna.

„Látið hráefnalistann ekki hræða ykkur því að elda þessa súpu í einum potti tekur ekki langan tíma og útkoman er himnesk. Ef það verður afgangur má svo bara setja lokið á pottinn aftur og geyma hann inn í ísskáp þar til næsta dag og hita súpuna þá upp,“ segir Berglind um súpuna góðu sem við hvetjum ykkur til að smakka.

Taílensk sumarsúpa

Fyrir um 4-5 manns

  • 500 g risarækja
  • ½ laukur
  • 3 hvítlauksrif
  • 3 cm engiferrót
  • 1 msk. saxað chili
  • 2 stilkar sítrónugras
  • 2 dósir kókosmjólk (2 x 400 g)
  • 2 msk. grænmetiskraftur
  • 500 ml vatn
  • 2 msk. púðursykur
  • 2 msk. soya-sósa
  • 300 g Udon-núðlur
  • 2 msk. karrý
  • 1 msk. túrmerik
  • Salt og pipar eftir smekk
  • Lime, jarðhnetur, kóríander og chili (ofan á í lokin eftir smekk)

Aðferð

  1. Skolið og þerrið rækjurnar, leggið til hliðar.
  2. Saxið lauk og chili smátt og rífið engifer og hvítlauk.
  3. Steikið upp úr vel af olíu, kryddið með karrý, túrmerik, salti og pipar eftir smekk og bætið sítrónugrasinu út í pottinn (í um 2 cm löngum sneiðum).
  4. Steikið allt saman við vægan hita þar til mýkist.
  5. Bætið þá kókosmjólk, vatni, krafti, púðursykri og soya-sósu í pottinn og leyfið að malla.
  6. Á meðan er gott að sjóða núðlurnar og skera kóríander, lime, chili og jarðhnetur til að setja yfir súpuna í lokin.
  7. Þegar núðlurnar eru soðnar má skola þær og geyma á meðan þið hækkið hitann á súpunni og bætið rækjunum saman við í um 3 mínútur.
  8. Þegar rækjurnar eru orðnar bleikar og fínar má setja núðlurnar í pottinn og blanda öllu saman.
  9. Síðan getur hver og einn skammtað sér chili, kóríander, jarðhnetur og lime.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert