Nýr eigandi opnar Messann í Lækjargötu

Tómas Þóroddsson, eigandi Messans.
Tómas Þóroddsson, eigandi Messans. Ljósmynd/Aðsend

Veitingamaðurinn Tómas Þóroddsson sem á og rekur staðina Kaffi krús og Vor á Selfossi hefur keypt Messann í Lækjargötu og verða dyr staðarins opnaðar gestum að nýju í dag. Áfram verður megináhersla lögð á ferskan fisk og upplifunin fyrir gesti sú sama og hún var fyrir lokun, enda eru yfirþjónn og kokkur staðarins þeir sömu og áður.

„Það er mikill fengur að þeim enda Messinn þekktur fyrir skotheldan mat og góða þjónustu. Konseptið verður alveg eins en það bætast við nokkrir nýir réttir á seðilinn og það getur nú ekki verið annað en fagnaðarefni fyrir gestina okkar,“ segir Tómas Þóroddsson nýr eigandi Messans.

Messinn verður opinn alla daga vikunnar frá klukkan 11.30-22 og segist Tómas spenntur fyrir því að standa vaktina með sínu fólki. 

„Veitingarekstur er mín ástríða og ég er því mjög þakklátur fyrir að geta starfað við það sem gleður mig einna mest. Ég hlakka því til að takast á við verkefnið“.

Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert