Hvað er eiginlega betra en grillaður kjúklingur spyrja margir sig reglulega og svarið er einfalt: grillaður kjúklingur með mexíkó-ostasósu. Flóknara er það ekki.
Það er meistari Berglind Hreiðars á Gotteri.is sem á þessa uppskrift sem hún segir að sé uppáhaldsréttur elstu dóttur sinnar.
Grillaðar kjúklingalundir og mexíkósósa
Fyrir um 4
Grillaðar kjúklingalundir
- 1 pakki kjúklingalundir
- 50 ml ólífuolía
- 4 msk. Teryaki BBQ sósa
- 1 tsk. hvítlauksduft
- 1 tsk. kjúklingakrydd
Aðferð
- Öllu nema lundum blandað saman í skál.
- Kjúklingalundum velt upp úr marineringunni, plastað og leyft að standa í kæli í að minnsta kosti klukkustund. Gott að gera þetta áður en kartöflurnar fara í ofninn því þær taka hátt í 1 ½ klukkustund í eldun.
- Grillið á heitu grilli í nokkrar mínútur á hvorri hlið og leyfið síðan að standa í um 10 mínútur.
Mexíkósósa
- 1 mexíkó kryddostur frá Gott í matinn
- 400 ml rjómi frá Gott í matinn
- 1 tsk. soyasósa
- 1 tsk. kjúklingakraftur
Aðferð
- Setjið um 200 ml af rjómanum í pott.
- Rífið ostinn út í og hrærið vel við meðalháan hita þar til osturinn er bráðnaður.
- Bætið þá restinni af rjómanum saman við ásamt soyasósu og krafti.
- Hitið að suðu og lækkið þá hitann vel niður og leyfið að malla, hrærið reglulega í á meðan.
Bakaðar sætar kartöflur
- 2 ílangar sætar kartöflur
- Ólífuolía
- Agave sýróp
- Pipar
Aðferð
- Hitið ofninn í 200°C.
- Berið ólífuolíu utan á kartöflurnar og bakið í um 1 ½ klukkustund eða þar til kartöflurnar verða vel mjúkar að innan.
- Takið út og skerið hvora kartöflu niður í 2-3 bita (eftir lengd/stærð).
- Gott er að setja vel af sýrópi og smá pipar yfir kartöfluna þegar hún er komin á diskinn.
Salat
- Blandað veislusalat
- ½ mangó skorið niður
- Um 20 vínber skorin niður
- Kóríander
- Um ½ krukka Dala fetaostur
- Um 2 lúkur mulið blátt Doritos
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir