Kjúklingasalat með ostasósu og grilluðum maís

mbl.is/Gunnar Sverrisson

Það er engin önnur en Halla Bára Gestsdóttir sem á þessa uppskrift sem er eiginlega skyldusmakk. Hún segir að salatið sé sett saman með hráefnin í huga en henni þyki þau fara vel saman og mynda hinn fullkomna bita.

„Þarna kemur ceasar-salat upp í hugann, líka djúpsteiktir kjúklingavængir og gráðaostasósa og þessi stökki og sæti grillaði maís sem á í raun svo vel við margt. Það má bæði grilla kjúklinginn í ofni eða djúpsteikja hann. En ég djúpsteikti hann að þessu sinni og það vakti mikla lukku! Skora á ykkur að prófa þetta salat," segir Halla Bára um salatið.

Kjúklingasalat með ostasósu og grilluðum maís

Grillaður maís:

  • 1 msk. repjuolía
  • 2 stk. maísstönglar, mega vera fleiri
  • smá tabascosósa, ef vilji er til

Salat:

  • 1 stk. romain salathaus
  • 1 stk. avocado
  • Goðdala ostur að eigin vali

Ostasósa:

  • 5 msk. sýrður rjómi 18% frá Gott í matinn
  • 2 msk. majónes
  • 1 msk. ólífuolía
  • 2 msk. rjómi frá Gott í matinn
  • 1 msk. hvítvínsedik
  • 2 msk. dijon sinnep
  • 2 msk. rjómaostur með graslauk og lauk
  • 2 msk. gráðaostur
  • 2 msk. rifinn cheddarostur
  • 1 msk. provence-krydd frá Pottagöldrum, eða annað blandað jurtakrydd

Kjúklingur:

  • 4 stk. kjúklingabringur, skornar í jafna strimla
  • 1 stk. egg, hrært
  • salt, pipar og paprikukrydd
  • 150 g panko rasp eða annað brauðrasp

Grillaður maís

  1. Olían er sett á pönnu og hituð.
  2. Hér má skera fersk maískornin strax af stönglunum áður en þau fara á pönnuna eða steikja fyrst og skafa svo.
  3. Maískornin eru látin brúnast aðeins á pönnunni og fá á sig grilltóna.
  4. Tabasco dreypt yfir ef vilji er til að fá smá bit í kornin.

Salat

  1. Rífið salatið gróft niður og setjið í stóra skál.
  2. Skerið avokadó niður í sneiðar en ekki setja saman við salatið. Það fer yfir í lokin.

Ostasósa

  1. Allt hráefnið er sett í matvinnsluvél og hrært vel saman þar til sósan er lungamjúk. Það er líka hægt að hræra og blanda með töfrasprota og svo bara í höndunum!
  2. Má þynna með meiri rjóma ef þarf.
  3. Hrærið sósuna saman við salatblöðin í skálinni. Það þarf líklega ekki alla sósuna saman við, gott að geyma og dreypa yfir salatið þegar allt er komið saman.

Kjúklingur

  1. Setjið kjúklinginn, kryddin og eggið í matvinnslupoka og hristið saman.
  2. Bætið raspinu saman við og nuddið allt vel saman svo raspið festist á kjúklingnum.
  3. Hér má annaðhvort djúpsteikja kjúklinginn í repju- eða sólblómaolíu þar til hann er gullinn og eldaður í gegn, eða setja hann í 200 gráðu heitan ofn í 12-15 mínútur.

Samsetning

  1. Salatinu er raðað saman. Hægt að raða á eitt stórt fat eða gera diska fyrir hvern og einn.
  2. Salat á disk, avokadó ef vill. Maískorn yfir. Kjúklingur. Ostaflögur. Meiri sósu dreypt yfir. Borið fram.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert