Réttir sem þú vissir ekki að fengjust á McDonalds

Í Kína getur þú valið um hvíta brauðbollu með svörtum …
Í Kína getur þú valið um hvíta brauðbollu með svörtum sesam fræjum eða svarta brauðbollu með hvítum sesam fræjum. mbl.is/Vanarama/McDonalds

Það er nánast ómögulegt að rekast ekki á skyndibitakeðjuna McDonalds á ferðalögum erlendis og jafnvel prófa eitthvað nýtt á matseðlinum.

Heimsþekkta skyndibitakeðjan McDonalds virðist vera dugleg að bjóða upp á framandi og nýja rétti en það voru Vanarama.com sem tóku saman nokkra af skrítnustu réttum sem McDonalds býður upp á víðsvegar um heiminn.

Hefur þú smakkað eitthvað af þessu?

Maukuð kartafla, fyllt með hökkuðum kjúkling a la Hollendingar.
Maukuð kartafla, fyllt með hökkuðum kjúkling a la Hollendingar. mbl.is/Vanarama/McDonalds
Hreint út sagt, bráðið súkkulaði í samloku í boði Þjóðverja.
Hreint út sagt, bráðið súkkulaði í samloku í boði Þjóðverja. mbl.is/Vanarama/McDonalds
Pólverjar bjóða upp á hvorki meira né minna en Gordon …
Pólverjar bjóða upp á hvorki meira né minna en Gordon Bleu borgara – beikon, kjöt og steiktur kjúklingur fylltur með skinku. mbl.is/Vanarama/McDonalds
Kókoshrísgrjón, gúrka, þistilhjörtu, spælt egg og ayam goreng – eða …
Kókoshrísgrjón, gúrka, þistilhjörtu, spælt egg og ayam goreng – eða þjóðarréttur Malasíu á einum diski á McDonalds. mbl.is/Vanarama/McDonalds
Ostafyllt nuggets með spínati og parmesan getur þú pantað þér …
Ostafyllt nuggets með spínati og parmesan getur þú pantað þér á Ítalíu. mbl.is/Vanarama/McDonalds
Ástralir bjóða okkur upp á McFlurry með tyggjósósu og litlum …
Ástralir bjóða okkur upp á McFlurry með tyggjósósu og litlum sykurpúðum. mbl.is/Vanarama/McDonalds
Kjúklingalæri með spaghettí og kjötsósu er vinsælt í Filippseyjum.
Kjúklingalæri með spaghettí og kjötsósu er vinsælt í Filippseyjum. mbl.is/Vanarama/McDonalds
Ástralir eru óðir í McNúðlur.
Ástralir eru óðir í McNúðlur. mbl.is/Vanarama/McDonalds
Í Suður Kóreu er ekkert eðlilegra en að panta sér …
Í Suður Kóreu er ekkert eðlilegra en að panta sér laxaborgara með buffi. mbl.is/Vanarama/McDonalds
Á Indlandi færðu brauðkörfu fyllta með kjúkling í karrí.
Á Indlandi færðu brauðkörfu fyllta með kjúkling í karrí. mbl.is/Vanarama/McDonalds
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert