Tiramisu marengsgerta sem sprengir alla skala

Ljósmynd/Linda Ben

Hvað er betra en góð marengsterta? Hér erum við með uppskrift frá Lindu Ben sem ætti að fá flest hjörtu til að slá hraðar. Tiramisu er í uppihaldi hjá mörgum og hér er búið að splæsa saman marengs og tiramisu á snilldarhátt.

Heimasíða Lindu Ben

Tiramisu marengsterta

  • 4 eggjahvítur
  • 130 g púðursykur
  • 90 g sykur
  • 70 g Rice Crispies
  • 600 ml rjómi frá Örnu Mjólkurvörum
  • 500 g mascarpone ostur
  • 70 g flórsykur
  • 1 tsk. vanilludropar
  • 125 g Lady Finger kexkökur
  • 150 ml kaffi
  • U.þ.b. 2 msk. kakó

Aðferð:

  1. Byrjið á því að kveikja á ofninum og stilla á 140ºC og stilla á undir og yfir.
  2. Best er að þeyta eggjahvíturnar í alveg tandurhreinni stál skál (smá fita í skálinni getur gert það að verkum að þær þeytast ekki eða mjög illa). Þeytið eggjahvíturnar og þegar þær byrja að freyða setjið þá púðursykurinn og sykurinn út í og þeytið þar til eggjahvíturnar eru stífþeyttar. Þið vitið að eggjahvíturnar eru tilbúnar þegar þið dýfið þeytaranum ofan í eggjahvíturnar og kippið upp aftur, eggjahvíturnar á þeytaranum eiga ekki að hreyfast.
  3. Setjið Rice Crispies út í og blandið saman með sleikju.
  4. Teiknið tvo hringi á smjörpappír (best að taka disk sem er 22 cm í þvermál og teikna meðfram diskinum) snúið pennastriks hliðinni niður og setjið deigið á smjörpappírinn inn í hringinn. Skiptið deiginu á milli smjörpappíranna og sléttið.
  5. Bakið í 40 mín og slökkvið svo á ofninum og leyfið kökunum að kólna með ofninum (sniðugt að gera kökuna að kvöldi og láta kólna yfir nótt og þá er kakan tilbúin næsta dag, en það er alls ekki nauðsynlegt).
  6. Setjið kaffið í frekar stórt eldfast mót (nógu stórt svo allar lady fingers kökurnar passi á botninn), raðið lady fingers kökunum í formið og snúið þeim strax við til þess að þær dragi í sig kaffið báðum megin.
  7. Þeytið rjómann.
  8. Setjið mascarpone ostinn í skál ásamt flórsykri og vanilludropum, þeytið varlega með handþeytara (ekki rafmagns). Setjið ostinn út í rjómann og blandið saman með handþeytaranum.
  9. Setjið örlítið af rjóma á kökudisk og annan marengsbotninn á kökudiskinn. Setjið helminginn af rjómanum á botninn og raðið svo lady fingers kökunum yfir. Sigtið kakó yfir. Leggið seinni marengsbotninn yfir og restina af rjómanum, sigtið kakóið yfir.
Ljósmynd/Linda Ben
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert