Nýtt piparkökudeig væntanlegt

Nýtt piparkökudeig er væntanlegt frá Pillsbury, en deigið má borða …
Nýtt piparkökudeig er væntanlegt frá Pillsbury, en deigið má borða hrátt án þess að fá illt í magann af því. mbl.is/Pillsbury

Já gott fólk, þið lásuð rétt – það er nú þegar byrjað að hita upp fyrir komandi tíð með nýju piparkökudeigi frá Pillsbury.

Þótt ótrúlegt megi virðast, þá er liðið á seinnihluta þessa árs sem þýðir bara eitt – smákökubakstur og kósíheit! Pillsbury mun sjá til þess að allir geti átt möguleika á því að baka góðar piparkökur þetta árið. Og það allra besta við deigið er að þú mátt borða það hrátt – án þess að fá illt í magann. Þetta deig þarf nefnilega ekki að baka, frekar en þú vilt, sem gleður marga sem elska að stelast í hrátt kökudeig. Kökudeigið er þó ekki komið í hillur verslana en búast má við því ekki seinna en í nóvember.

mbl.is/Colourbox
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert