Rib-eye og franskar sem æra bragðlaukana

Grilluð rib-eye steik með frönskum og brokkolíni að hætti Snorra …
Grilluð rib-eye steik með frönskum og brokkolíni að hætti Snorra hjá Matur og Myndir. mbl.is/Snorri Guðmundsson

Snorri Guðmunds hjá Matur og Myndir býður okkur upp á grillað rib-eye með hvítlaukssmjöri, krydduðum frönskum og brokkolíni. Skotheld uppskrift á síðsumarkvöldum.

Skotheld uppskrift í boði Snorra (fyrir 2)

  • Ribeye steikur, 2x 250 g
  • Franskar kartöflur, 400 g / Ég notaði Aviko Super Crunch
  • Hvítlauksduft, 0,5 tsk
  • Paprikuduft, 0,5 tsk
  • Brokkolini, 250 g / Fæst í Costco
  • Smjör, 60 ml / Við stofuhita
  • Hvítlauksrif, 2 lítil eða 1 stórt
  • Steinselja, 2 msk söxuð
  • Sítróna, 1 stk
  • Salt eftir smekk

Aðferð:

  1. Pressið hvítlauksrif og rífið um 2 tsk af sítrónuberki (varist að taka hvíta undirlagið með). Blandið saman hvítlauk, smjöri, saxaðri steinselju og sítrónuberki. Smakkið til með salti.
  2. Takið kjötið úr kæli amk 1 klst fyrir eldun, en það mun hjálpa til við jafnari og betri eldun.
  3. Nuddið kjötið með olíu og saltið rausnarlega. Piprið eftir smekk.
  4. Setjið kartöflurnar í stóra skál, veltið upp úr olíu og salti og eldið þær svo eftir leiðbeiningum á umbúðum.
  5. Færið bakaðar kartöflurnar aftur í skálina og veltið upp úr hvítlauks og paprikudufti. Smakkið til með salti ef þarf.
  6. Setjið vatn í pott ásamt svolitlu salti og náið upp suðu. Lækkið hitann svo það rétt kraumi í vatninu og sjóðið brokkolini í 3 mín.
  7. Hitið grill að 200°C og grillið steikurnar í 4-5 mín á hvorri hlið upp í 54°C kjarnhita fyrir medium-rare eldun. Best er að nota kjöthitamæli til að tryggja nákvæma eldun. Leyfið kjötinu að hvíla í nokkrar mín áður en skorið er í það.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert