Vikumatseðillinn mættur!

Ljósmynd/Thelma Þorbergsdóttir

Það er komið að vikunni sem margir hafa beðið ólmir eftir; fyrstu formlegu skólavikunni (að minnsta kosti hjá flestum). Það er því ekki seinna vænna að koma heimilinu í rútínu og því er hann mættur ... sjóðheitur og spennandi vikumatseðill sem ætti að koma öllum í gírinn.

Mánudagur:

Það er gott að byrja á einföldum fiskrétti sem öllum í fjölskyldunni ætti að líka vel.

Þriðjudagur:

Þetta er vandaðari gerðin af þriðjudagsdekri þar sem mexíkósk matargerð er í forgrunni. Algjör sprengja úr smiðju Svövu Gunnars á Ljúfmeti.is sem þið verðið að prófa.

Miðvikudagur:

Það er ekkert betra en góður karríréttur ... hvað þá með kjúklingi.

Fimmtudagur:

Þessi kjúklingaréttur er það sem myndi kallast hin fullkomna byrjun á helginni. Það er fátt betra en kjúklingur og mangó chutney blandað saman og hér tekst það fullkomlega!

Föstudagur:

Það er fösssari ... og þá fær maður sér pítsu. Það er ekkert flóknara en það. Þessi ku sú besta norðan Alpafjalla. Það er ógerningur að keppa við það. 

Laugardagur:

Við getum ekki hætt að dásama flanksteik enda er hún frábær. Þessi útgáfa frá Lækninum í eldhúsinu er spennandi og vel þess virði að prófa. 

Sunnudagur:

Við ákváðum að enda á kjarngóðri máltíð fyrir komandi viku og hvað er betra en trylltar kjötbollur? Það er alla vega spennandi að sjá hvað gerist við matarborðið ...

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert