Sérfræðingar tóku út nýju Nóa molana

Þær stórfréttir bárust á dögunum að von væri á fjórum nýjum konfektmolum frá sælgætisframleiðandanum Nóa Síríusi. Eins og vænta mátti voru viðbrögðin við þessum fregnum mikil og tróndi fréttin á toppnum yfir mest lesnu fréttir dagsins á mbl.is. Molarnir eru fjórir talsins og hver öðrum ólíkari. Molarnir koma í stað annarra mola og segja má að við þessa breytingu þéttist konfektlína Nóa Síríus til muna. Molarnir eru afskaplega afgerandi og það er nákvæmlega ekkert leiðinlegt eða óspennandi við þá. Fjórar stjörnur sem vert er að taka eftir.

Við fengum fimm álitsgjafa okkur til aðstoðar enda margslungin vísindi að smakka mat. Álitsgjafarnir voru Stefán Einar Stefánsson, ritstjóri ViðskiptaMoggans, Guðlaug Sigurðardóttir, framleiðslustjóri Morgunblaðsins, Steinþór Guðbjartsson, blaðamaður á Morgunblaðinu, Elín Arnórsdóttir, grafískur hönnuður, og Kristín Sif Björgvinsdóttir, dagskrárgerðarkona á K100.

Kókosmarsípanmolinn

Molinn kemur úr uppskriftabók eins verkstjórans sem blandaði iðullega saman kókos og marsípani í konfektmola fyrir starfsmenn til hátíðabrigða um jólin. Molinn hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá starfsfólki og nú fær þjóðin loks að njóta með.

„Þetta er klassískur Nóa Síríus-moli útlitslega. Marsípan/kókosfyllingin er hins vegar algjört meistaraverk, létt en mjúk og þétt og í góðu jafnvægi við súkkulaðið. Kókosbragðið kemur fyrst fram en síðan tekur við fínlegt marsínpanbragð. Fyrir minn smekk var þetta langbesti molinn af þessum fjórum. Hann er mjög „elegant“ og hentar við öll tækifæri.

„Kókosblandaða marsípanið er léttara en hefðbundnir marsípanmolar.“

„Marípanmolinn tekinn á næsta level. Kókosinn blandaður við marsípanið gerir hann líflegri og mann langar í meira.“

„Hættulega góður moli. Virkilega góð blanda.“

„Krembrauð með kókos og marsípani. Blanda sem ég hef ekki látið mér detta í hug áður en er skemmtileg. Elska marsípan en þetta er sannarlega léttara og ekki eins „olíukennd“ áferð eins og oft verður af hreinni marsípanfyllingu.“

„Ægilega góður. Marsípanið verður miklu betra með kókosinu. Miklu betri en venjulegur marsípanmoli. Léttur í maga.“

„Marsípanið kemur fyrst sterkt fram og svo tekur kókosbragðið við. Fullkomin blanda.“

Laufabrauðsmolinn

Fagurlega skreyttur með klassísku laufabrauðsmynstri. Fyllingin varð óvart til þegar ungur starfsmaður blandaði tveimur fyllingum saman fyrir algjöra tilviljun. Úr varð þessi gómsæta fylling sem vakti mikla lukku innanhúss og búið er að spara fyrir rétta tilefnið.

„Bragðið spilar virkilega vel saman. Sætt og gott eftirbragð.“

„Virkilega góður moli. Karamellan er fljótandi með mildu kókos- og jafnvel vanillubragði.“

„Skemmtileg útfærsla á laufabrauðsmynstri prýðir molann. Það eitt og sér gerir hann spennandi. Fyllingin margslungin, keimur af kókos og vanillu. Bragðið er flókið en tónar vel saman. Fyllingin er dísæt en bragðlítið súkkulaðið tónar sætubragðið aðeins niður. Þennan mola þarf að borða í heilu lagi því fyllingin lekur út sé bitið í hann.“

„Léttur og góður karamellumoli. Karamellan hvorki of þung né of sæt. Dálítill „cool kid on the block“ fílíngur.“

„Guði sé lof fyrir þennan Viggó viðutan sem ruglaði bragðtegundunum.“

„Fallegur moli og munstrið klassískt og jafnvel dálítið gamaldags. Kókoskaramellan er skemmtileg nýjung. Karamellan kemur sterk inn fyrst og kókosinn er jafnvel dálítið feiminn. Kemur þó betur í ljós í millibragðinu. Karamellan alls ekki brennd eða þung. Létt og skemmtileg blanda.“

Hrafnamolinn

Skuggalega fagur moli með tilkomumiklum hrafni á. Molinn er svar Nóa Síríus við ákalli þjóðarinnar en lengi hefur verið beðið eftir lakkrísmola.

„Í mola sem skartar hrafni á steini og krákusporum á hliðum hlýtur að vera lakkrísfylling, sem var raunin. Sæt saltlakkrísfyllingin höfðar til margra enda hefur lakkrís verið geysivinsæll hin síðari misseri.“

„Háklassa moli.“

„Vel balanseraður og stingur vel á tungubroddinn.“

„Mjúk lakkrísfylling sem er bæði sölt og sæt. Virkilega gott jafnvægi. Liturinn á fyllingunni kom á óvart.“

„Besti lakkrísmoli sem ég hef smakkað. Saltur og góður, rjómakenndur og mjúkur í munni.“

„Lakkrís og súkkulaði klikkar aldrei. Hóflegt salt í bland við lakkrísinn. Bitinn er í sætara lagi, jafnvel væminn en það kemur ekki að sök. Dálítil vonbrigði að fyllingin væri ekki svört eins og krummi en kannski er gert ráð fyrir að fólk borði molann í einum bita. Lagið á molanum er mjög skemmtilegt og er á pari við stuðlabergsmyndanirnar á Íslandsmolanum sem alltaf kæta augað.“

„Þjóðin á eftir að elska þennan.“

Nóa Síríus-molinn

Molinn inniheldur gamla uppskrift að rjómatrufflu frá því að verksmiðjan var á Barónsstíg, sem fannst við undirbúning 100 ára afmælissýningar Nóa Síríus fyrr á árinu og var ákveðið að setja í konfektmola.

„Mild rjómakaramellufyllingin er fínleg og nýtur sín vel með ljósu súkkulaðinu. Molinn státar af merki Nóa Sírus á toppnum en á hliðunum eru fínlegar blómaristur. Í eftirbragðinu leynist grunur um líkjör eða romm.“

„Góður konfektmoli sem passar við öll tækifæri. Skemmtilegt aukabragð sem gerir gæfumuninn.“

„Vandaður og lágstemmdur moli. Á vel við með flestu. Trufflan passlega mjúk og dásamleg.“

„Skemmtileg og tilgerðarlaus rjómatruffla. Ekki of sæt og jafnvægið í bragðinu gott. Undarlega léttur romm-undirkeimur sem hvílir vel í eftirbragðinu.“

„Virkilega góður rjómasúkkulaðimoli með smá rommbragði. Það er allavega einhver spennandi tónn sem gefur gott eftirbragð.“

„Þetta er moli fyrir alla. Hann er mjúkur og notalegur. Virkilega góður kaffibollamoli. Smá nostalgía í honum en útfærslan alveg til fyrirmyndar.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert