Ostabakan sem slær allstaðar í gegn

Ljósmynd/María Gomez

Ef þið eruð í þeim hópi sem elskið frönsk fínheit og alvöru osta þá er þetta uppskrift fyrir ykkur. Þessi baka passar í saumaklúbbinn, hádegisverðinn, sunnudagsbrönsinn og allt þar á milli.

Það er María Gomez á Paz.is sem á heiðurinn að uppskriftinni sem er upp á 10 eins og allt sem hún gerir.

Þriggja osta baka með skinku og púrrulauk

Botn

  • 1 stórt egg
  • 2 ½ msk. klakavatn
  • 1 ½ bolli hveiti
  • ½ tsk salt
  • 140 gr smjör skorið í teninga

Fylling

  • 20 gr smjör
  • 100 gr púrrulaukur
  • 1 ½ bolli matreiðslurjómi
  • 4 stór egg eða 5 lítil
  • 2 tsk. ferskt timian eða 1 tsk þurrkað
  • Múskat á hnífsoddi (má sleppa en gefur gott bragð)
  • 60 gr parmesan
  • 50 gr rifinn cheddar ostur
  • 100 gr Havarti ostur
  • 80 gr skinkustrimlar
  • pínu salt og pipar

Aðferð

Botn

  1. Setjið egg og klakavatn í litla skál og pískið saman með gaffli og leggið til hliðar
  2. Setjið svo hveiti og salt í blandara á pulse
  3. Skerið smjör í teninga og bætið við í blandarann og pulsið þar til er orðið eins og mylsna
  4. Setjið að lokum eggjavatnið og pulsið þar til verður að fallegri kúlu
  5. Fletjið svo deigið út og leggjið yfir mót og skerið kanta af ef þeir ná uppfyrir kantana (notið pam sprey ef þið ætlið að taka úr forminu og bera fram á disk, sleppið ef þið ætlið að bera fram í mótinu)
  6. Stingið svo í deigið með gaffli út um allt og setjið í frystir meðan fyllingin er útbúin

Fylling

  1. Skerið púrulaukinn smátt og hitið smjörið á pönnu
  2. Steikið laukinn í smjörinu en bara við vægan hita þar til verður mjúkur, alls ekki brúna hann saltið ögn og piprið
  3. Setjið svo havarti ost og parmesan í blandara og malið smátt
  4. Setjið svo egg í skál og alla ostana 3 saman við ásamt rjómanum og hrærið vel saman
  5. saltið smá og piprið og kryddið með timian og muskat og hrærið aftur saman
  6. Takið svo botninn úr frystir og forbakið hann við 180 C°hita í 12-15 mínútur
  7. Þegar hann kemur úr ofninum lækkið þá hitann niður í 165 C°
  8. Setjið svo laukinn á botninn á bökunni og hellið eggjaostablöndunni yfir allt saman
  9. Stingið í ofninn í 45 mínútur
  10. Takið svo út og leyfið henni að kólna en mér fannst hún langbest þegar hún var búin að standa á borði í svoldinn tíma og var við stofuhita. Má líka bera fram heita og kalda úr ískáp.

Punktar

Ef þið notið bökunarform eins og smelluform er betra að leyfa köntunum að ná út fyrir formið svo það leki ekki niður með brúnunum, notið þá líka Pam sprey svo hún losni vel frá þegar þið takið hana úr mótunu. Ef þið notið eldfast bökuform þarf ekki að nota Pam.

Ljósmynd/María Gomez
Ljósmynd/María Gomez
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert