Ofnbökuð bleikja með pestói

Ljósmynd/Albert Eiríksson

Kvöldmaturinn þarf ekki alltaf að vera flókinn eða eins og Albert Eiríksson segir: „Stundum vantar eitthvað ofureinfalt og fljótlegt í matinn.“

Þá smellapassar að skella einni bleikju inn í ofninn eins og Albert gerir hér. Uppskrift sem getur ekki klikkað.

Ofnbökuð bleikja með pestói

  • 1 bleikjuflak
  • 1 lítil krukka pestó
  • 2-3 hvítlauksrif
  • 1 búnt steinselja
  • 1 msk. þurrkað basil
  • 2 msk. rifinn parmesanostur
  • góð olía
  • 1 dl ristaðar furuhnetur

Skerið bleikjuna í bita. Setjið pestó, hvítlauk, steinselju, basil, ost, olíu og hnetur í matvinnsluvél og maukið (ekki of fínt). Bætið við salti og pipar ef þarf

Meðlæti

  • 1 rauðlaukur
  • 1 dl góð olía
  • 2-3 b grasker skorið í bita
  • 1 msk. rósmarín
  • salt og pipar

Skerið laukinn gróft og steikið í olíunni. Bætið við graskeri, kryddið með rósmaríni, salti og pipar. Veltið um á pönnunni þar til graskerið er orðið passlega mjúkt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert