Nýtt Toblerone á markað

Nýtt Toblerone með appelsínubragði er komið á markað.
Nýtt Toblerone með appelsínubragði er komið á markað. mbl.is/Getty/Toblerone

Haldið ykkur fast, gott fólk, því súkkulaðiþríhyrningurinn er nú fáanlegur með appelsínubragði.

Það virðist sem sælgætisframleiðendur séu komnir á bragðið með appelsínu-tvist, því Cadbury tilkynnti á dögunum endurkomu á sítrussúkkulaði og nú er Toblerone að gera slíkt hið sama. Og það virðist sem neytendur elski þessar endurkomur og þeir fagna því óspart í kommentakerfum samfélagsmiðlanna.

Nýja súkkulaðið er blanda af mjólkursúkkulaði, kandíseruðum appelsínuberki, engifer, hunangi og möndlunúggati. 2020 ætlar greinilega að vera ár appelsínusúkkulaðis – og það þarf alls ekkert að selja okkur þetta frekar!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert