Ariana Grande sendi Selenu Gomez merkilegan blómvönd

Ariana Granda fékk sendan stóran blómvönd í laginu eins og …
Ariana Granda fékk sendan stóran blómvönd í laginu eins og ís. mbl.is/Shutterstock

Selena Gomez og K-Pop-hópurinn BLACKPINK gáfu út nýtt lag sem heitir „Ice Cream“ – og Ariana Grande sendi henni frábæra gjöf. Gjöfin var blómvöndur í laginu eins og risastór ís!

Blómvöndurinn var búinn til úr stórum kúlum af bleikum rósum með hvítum rósum í kring – rétt eins og jarðarberjaískúla ofan á vanilluís. Og til að toppa útlitið komu blómin í vasa sem var hannaður til að líta út eins og vöffluform þar sem vanilluísinn bráðnar niður formið.

Selena deildi mynd af blómvendinum (ísnum) á instagramsíðunni sinni og þakkaði Aríönu í bak og fyrir. Þær vinkonurnar eru góðar að styðja við bakið hvor á annarri þegar vel gengur.

Blómvöndur í laginu eins og ís! En gjöfin var frá …
Blómvöndur í laginu eins og ís! En gjöfin var frá Ariana Grande, góðri vinkonu Gomez. mbl.is/Instagram_Selena Gomez
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert