Pastarétturinn sem er löðrandi í dásemdarostum

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

Hér gefur að líta alveg hreint dásamlegan pastarétt sem ætti að falla flestum í geð enda fátt betra en ostafyllt tortellini sem er löðrandi í góðgæti.

Það er engin önnur en Berglind Hreiðarsdóttir á Gotteri.is sem á heiðurinn af uppskriftinni.

Pastaréttur með tómötum og mascarpone

6 skammtar

  • 700 g ferskt ostatortellini
  • 800 g hakkaðir tómatar í dós
  • 150 ml rjómi frá Gott í matinn
  • 150 g kastaníusveppir
  • 1 stk. laukur
  • 150 g spínat
  • 200 g íslenskur mascarpone frá Gott í matinn
  • smjör og ólífuolía til steikingar
  • salt, pipar, óreganó, hvítlauksduft
  • rifinn Goðdala-Grettir
  • fersk basilíka

Aðferð:

  1. Sjóðið pasta samkvæmt leiðbeiningum. Ef notast er við ferskt pasta tekur það aðeins örfáar mínútur að verða tilbúið.
  2. Saxið niður lauk og skerið sveppi í sneiðar, steikið upp úr blöndu af smjöri og ólífuolíu þar til mýkist.
  3. Bætið þá spínati á pönnuna og kryddið til með salti, pipar og hvítlauksdufti.
  4. Þegar grænmetið er orðið mjúkt má hella tómötum í dós ásamt rjóma yfir og leyfa að malla smá stund.
  5. Kryddið til eftir smekk.
  6. Þegar tortellini er tilbúið skal hella því á pönnuna og hræra saman við tómatblönduna.
  7. Setjið pastað næst í eldfast mót (nema pannan/potturinn megi fara í ofn).
  8. Rífið vel af Óðals-Gretti yfir allt saman og setjið að lokum vel af mascarponeosti yfir.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert