Haustjógúrt kaka með bláberjum & heimagerðu hafrakexi

Ljósmynd/Valla

Hún Valla sem bloggar inn á GRGS á heiðurinn að þessari köku sem við getum kallað haustboðann ljúfa. Hér er notast við grísku haustjógúrtina frá Örnu sem er alltaf jafn vinsæl og góð.

„Það eru nánast eins og jólin séu komin þegar gríska haustjógúrtin frá Örnu kemur í verslanir í lok sumars. Það liggur auðvitað beinast við að gera góða jógúrt köku þegar hún kemur og bjóða upp á í fyrsta saumó haustsins. Ótrúlega auðvelt að gera og hægt að útbúa fyrir fram og geyma í kæli þar til bera á kökuna fram. Ég bakaði hafrakexið sérstaklega fyrir kökuna en vissulega þarf þess ekki. Það er bara eitthvað sérlega gott við heimabakað hafrakex og það passar svo vel við bláberjajógúrtina.“

Haustjógúrt kaka með bláberjum og heimagerðu hafrakexi

  • 300 g hafrakex
  • 150 g brætt smjör
  • 2 krukkur grísk haustjógúrt frá Örnu
  • 450 ml rjómi frá Örnu
  • 4 matarlímsblöð, má sleppa
  • 4 msk. bláberjasulta + auka til að setja ofan á kökuna
  • 2 msk. flórsykur
  • Fersk bláber

Heimabakað hafrakex

  • 3/4 bolli sykur
  • 1 bolli hveiti
  • 180 g mjúkt smjör
  • 1 tsk. matarsódi
  • 1 tsk. lyftiduft
  • 1 og 1/3 bolli fínt haframjöl
  • 1 stórt egg við stofuhita

Setjið þurrefni í hrærivélaskál og blandið saman, setjið restina saman við og hrærið þar til deigið er samlagað. Setjið deigið í kæli og leyfið því að taka sig þar í svona 30 mín. Takið það út og setjið á hveitistráða borðplötu og fletið út í ca 0,5 cm þykkt. Færið á bökunarplötu og bakið í ca. 15 mín. við 180°C. Látið kexið kólna alveg, það verður alveg stökkt þegar það kólnar.

Leiðbeiningar

1. Bakið hafrakex eða kaupið bara út í búð. Vigtið 300 g og myljið í matvinnsluvél eða brjótið fínt með höndunum. Bræðið smjörið og hrærið saman við ásamt kanil.

2. Setjið kexblönduna í miðlungsstórt eldfast mót og þjappið lauslega, passið að þjappa ekki of þétt því þá getur verið erfitt að skera kökuna eftir kælingu.

3. Stífþeytið rjóma ásamt flórsykri. Blandið jógúrtinni saman við ásamt sultunni. Setjið jógúrtfyllinguna yfir kexbotninn. Setjið sultu á toppinn eins og vill og dragið hana út með tannstöngli.

4. Setjið kökuna í kæli í að minnsta kosti 3-4 tíma en jafnvel enn betra ef það næst yfir nótt.

5. Berið fram með ferskum bláberjum.

Ljósmynd/Valla
Ljósmynd/Valla
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert