Ólafur Örn Ólafsson með nýtt hlaðvarp

Ólafur Örn Ólafsson veitinga- og umsjónarmaður sjónvarpsþáttanna Kokkaflakk, sem Skot Productions framleiðir fyrir Sjónvarp Símans, er byrjaður með nýtt hlaðvarp sem ber sama nafn og sjónvarpsþátturinn vinsæli. Hlaðvarpið er framleitt af hlaðvarpsstöðinni Hljóðkirkjan, sem sannarlega hefur slegið í gegn á þeim stutta tíma sem hún hefur verið til.

Vegna takmarkanna á ferðafrelsi er eitthvað hlé á framleiðslu ferðasjónvarpsþátta eins og Kokkaflakks og til þess að svala forvitni sinni hefur Ólafur Örn ákveðið að halda áfram að tala við fólk, en að þessu sinni innanlands og ekki í sjónvarpi. Hlaðvarpið Kokkaflakk byggir á sömu hugmyndum og sjónvarpsþátturinn, Ólafur Örn fer og hittir fólk sem einhvernvegin tengist mat og drykk og ræðir við það um, jú einmitt, mat og drykk, hvaðan þetta fólk kemur og hvernig það leiddist út á þessa matarbraut, eða bara hvað sem kemur upp. Kokkaflakk í eyrun er semsagt viðtalsþáttur þar sem hlustendur fá að kynnast viðmælendum náið í formi eins langra viðtala og þarf.

Fyrsti þáttur fór í loftið þriðjudaginn 8. september og mun innan tíðar vera aðgengilegur á öllum helstu hlaðvarpsveitum heims, svo sem Spotify og Apple Podcasts. Hlaðvarpið er svo vikulegt þannig að alla þriðjudaga mun nýr þáttur líta dagsins ljós á slaginu 00:01.

Nánari upplýsingar má finna á facebook og instagram síðum þáttanna (Kokkaflakk) og hjá Hljóðkirkjunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert