Trylltar Oreo trufflur með Rolo-fyllingu

Geggjaðar nammikúlur sem þú þarft ekki að baka.
Geggjaðar nammikúlur sem þú þarft ekki að baka. mbl.is/ Fitwafflekitchen/Instagram

Gjörið svo vel gott fólk! Hér eru trylltar Oreo trufflur með Rolo-fyllingu sem innihalda einungis fjögur hráefni.

Uppskriftin kemur frá Eloise Head sem gengur undir nafninu FitWaffle Kitchen á Instagram með yfir 160 þúsund fylgjendur. Hér er engin þörf á neinum meistaratöktum því uppskriftin gæti ekki verið einfaldari.

Trylltar Oreo trufflur með Rolo-fyllingu

  • 10 Oreo kexkökur
  • 60 g rjómaostur
  • 130 g mjólkursúkkulaði
  • 7 Rolobitar

Aðerð:

  1. Myljið Oreo í matvinnsluvél. Einnig er hægt að mylja kexið í poka með kökukefli. Geymið smávegis af mylsnunni til skrauts.
  2. Blandið saman mylsnunum við mjúkan rjómaostinn.
  3. Takið teskeið af blöndunni og fletjið út. Setjið Rolobita inn í og rúllið upp í kúlu. Leggið kúlurnar á bökunarplötu og setjið í frysti í 20 mínútur þar til kúlurnar verða harðar.
  4. Bræðið mjólkursúkkulaðið og dýfið kúlunum ofan í þannig að súkkulaðið þeki kúlurnar. Leggið á bökunarpappír á bökunarplötu.
  5. Stráið Oreomylsnum yfir kúlurnar og setjið inn í ísskáp til að harna áður en borið er fram.
Oreo trufflur, fylltar með Rolo.
Oreo trufflur, fylltar með Rolo. mbl.is/ Fitwafflekitchen/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert