Haustsúpan sem Hildur Rut elskar

Stórkostleg tómatsúpa í haustlægðinni.
Stórkostleg tómatsúpa í haustlægðinni. mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir

Það hefur ekki farið framhjá neinum að haustið hefur bankað á dyrnar og þá jafnast fátt á við bragðgóða tómatsúpu með ferskum mozzarella og basilíku. Og þessi er einstaklega góð!

Súpan er í boði Hildar Rutar sem segist alltaf sjúk í súpur á haustin. „Þessi tómatsúpa inniheldur gulrætur sem gerir súpuna einstaklega góða. Toppurinn yfir i-ið er að rífa ferskan mozzarella og dreifa yfir súpuna rétt áður en þið borðið hana. Svakalega gott. Ég kaupi minn mozzarella í Costco, hann er mjúkur og mjög bragðgóður þar. Mæli með að bera þetta fram með góðu brauði.“

Yndisaukandi tómatsúpa (fyrir 3-4)

  • 1/2 laukur
  • 4-5 gulrætur, skornar í bita
  • 400 g plómutómatar í dós
  • 2 msk tómatpúrra
  • 2 hvítlauksrif
  • 2 tsk grænmetiskrafturkraftur
  • 4 dl vatn
  • 1-2 dl vatn (meira vatn)
  • 1 ½ dl rjómi
  • salt og pipar
  • cayennepipar

Toppa með:

  • Ólífuolíu
  • ferskri basilíku
  • ferskum mozzarella

Aðferð:

  1. Steikið lauk upp úr ólífuolíu. Bætið svo gulrótum og hvítlauk saman við.
  2. Hellið tómötum úr dós ásamt öllum safanum ofan í, tómatpúrru, 4 dl vatni og grænmetiskrafti. Hrærið og látið malla saman í 30-40 mínútur á vægum hita.
  3. Blandið öllu vel saman með töfrasprota. Þá er súpan orðin vel þykk. Þynnið súpuna með 1-2 dl vatni og rjóma. Kryddið með cayenne, salti og pipar.
  4. Berið fram með ólífuolíu, ferskri basilíku og ferskum mozzarella.

Ólífuolía með basilíku

  1. Blandið saman með töfrasprota ólífuolíu, basilíku og smá salti. Hver og einn dreifir svo yfir sína súpuskál þegar þið berið hana fram.
mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert