Fylltar krönsí kjúklingabringur með chili og sítrónu

Fylltar krönsí kjúklingabringur að hætti Hildar Rutar á Trendnet.
Fylltar krönsí kjúklingabringur að hætti Hildar Rutar á Trendnet. mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir

Hér býður Hildur Rut okkur upp á trylltar og fylltar krönsí kjúklingabringur, með linsubaunasnakki og kartöflum. Sannkölluð veisla fyrir bragðlaukana.

Fylltar krönsí kjúklingabringur með chili og sítrónu (fyrir 3)

  • 3 kjúklingabringur
  • 6 dl Eat real lentil chips chili & lemon
  • 1 egg
  • 1 dl spelt
  • Salt & pipar
  • Pam sprey

Fylling

  • ½ Philadelphia-rjómaostur
  • 1 msk. safi úr sítrónu
  • 1-2 msk. steinselja
  • Hvítlauksrif
  • Salt og pipar

Kartöflur

  • 10 kartöflur
  • ½ dl ólífuolía
  • 1-2 msk. ferskt timjan (má vera þurrkað)
  • 1-2 msk. fersk steinselja
  • Salt & pipar

Sósa

  • 1 dl Heinz-majónes
  • 1 dl sýrður rjómi
  • ½ tsk. hunang
  • Lítið hvítlauksrif, pressað
  • 1 msk. fersk steinselja, smátt söxuð
  • 2 msk. rifinn parmigiano reggiano

Aðferð:

  1. Byrjið á því að útbúa fyllinguna. Hrærið saman rjómaost, sítrónusafa, steinselju, hvítlauksrif, salt og pipar.
  2. Dreifið snakkinu á disk, speltinu á annan disk og pískið eggið í skál.
  3. Snyrtið kjúklingabringurnar og skerið gat í miðjuna á þeim þannig að úr verði vasi.
  4. Fyllið bringurnar með rjómaostafyllingunni (gott að nota skeið).
  5. Setjið snakkið í poka og rúllið yfir með kökukefli svo það verði að mulningi.
  6. Veltið bringunum varlega upp úr speltinu (passið að fyllingin leki ekki út), egginu og síðan snakkinu.
  7. Spreyið kjúklinginn með Pam-spreyi og bakið í ca. 40 mínútur við 190°C í eldföstu formi þöktu bökunarpappír
  8. Skerið kartöflurnar í báta og veltið þeim upp úr ólífuolíu og kryddinu. Bakið í 30-40 mínútur við 190°C. Veltið þeim reglulega.
  9. Á meðan kjúklingurinn og kartöflurnar eru í ofninum að bakast er kjörið að útbúa sósuna! Blandið öllu hráefninu saman með skeið.
  10. Mjög gott að bera réttinn fram með fersku salati.
mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert