Fagnar matreiðslubók eiginkonunnar með nektarmynd

Eric Decker á Evuklæðunum.
Eric Decker á Evuklæðunum. Ljósmynd/skjáskot af Instagram

Það eru til ýmsar leiðir til að fagna útgáfu bóka en það virðist reyndar vera í tísku að fagna öllum fjandanum án fata þannig að hví ekki matreiðslubók.

Fyrrum ruðningskappinn og stjörnueiginmaðurinn Eric Decker birti mynd af sér nöktum með bók eiginkonunnar í fanginu þar sem hann fór fögrum orðum um hana (bókina).

Fyrir þá sem ekki þekkja til þessara sóma hjóna þá heitir frúin Jessie James Decker og er sveitasöngkona og sjónvarpsstjarna. Hjónin eru þjóðþekkt í Bandaríkjunum þar sem þau voru í mörg ár með raunveruleikaþætti á sjónvarpsstöðinni E!

Bæði eru þau einstaklega iðin við kolann en þau giftu sig árið 2013, sama ár og þau eignuðust frumburð sinn. Parið á í dag þrjú börn og hefur Decker lagt ruðningshjálminn á hilluna en hann spilaði meðal annars með Denver Broncos og New England Patriots á ferli sínum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert