Mest spennandi taco uppskrift síðari ára

Ljósmynd/María Gomez

Hér erum við með uppskift frá Maríu Gomez á Paz.is sem er algjörlega geggjuð. Við erum að tala um mögulega eina mest spennandi taco-uppskrift sem sést hefur.

„Það voru ekkert allir á heimilinu hrifnir af hugmyndinni að sleppa hakkinu í Taco, en ég lét það sem vind um eyru þjóta um leið og ég hafði smakkað þetta quinoa, enda er quinoa stútfullt af próteini. Mér hefur hins vegar alltaf fundist alveg hundleiðinlegt að sjóða quinoa enda tekur það sinn tíma sem gerir það að verkum að ég sleppi því oft að hafa það. 

Þess vegna er þessi nýja vara á markaði algjör snilld þar sem það þarf ekkert að gera nema borða það beint kalt úr pokanum eða hita það í tvær mínútur í örbanum. Til eru fjórar bragðtegundir af þessari snilldarvöru. Hér er fullt af öðru gúmmelaði fyllt í tacobátana, heimagert guacamole, heimagerð cheddarostasósa, steiktur rauðlaukur með hunangi og balsamik edik svo fátt eitt sé nefnt," segir María.

Ljósmynd/María Gomez
Kjötlausir tacobátar sem slóu í gegn

Sætur rauðlaukur með balsamikediki og hunangi

  • 2 rauðlaukar 
  • 15 gr smjör 
  • 1 msk. balsamikedik
  • 1 msk. hunang
  • 1/2 tsk. fínt borðsalt

Guacamole 

  • 1 stórt eða 2 lítil avócado
  • 1 rauðan ferskan belgpipar
  • salt og pipar
  • limesafa ef vill
  • 100 gr sýrður rjómi með graslauk 

Cheddarostarsósa 

  • 30 gr ósaltað smjör
  • 25 gr hveiti
  • 1 bolli nýmjólk
  • 1 bolli cheddarostur rifinn
  • 1/2 msk. chilisósa, ég notaði Sriracha sósu
  • 1/2 tsk. cayenne pipar
  • Nóg af salti og ögn af pipar
  • 1/2 rauðan belgpipar ef vill en má sleppa 

Tacoið sjálft 

  • 2 pakkar af mjúkum tacobátum 
  • 1 box piccolo tómatar
  • 1/2 gúrka 
  • 1/2 haus kínakál það er langbesta kálið í þetta 
  • 1 box sýrður rjómi með graslauk eða með habanero 
  • 1 poki forsoðið quinoa með mexíkóbragði frá Quinola
  • 1 dós gular baunir 
  • salsa sósa að eigin vali 
  • svartar baunir í dós og skola í sigti 
  • jalapaeno í krukku 
  • ferskt kóríander 
  • 1 dós sýrður rjómi með graslauk eða habanero 

Sætur rauðlaukur með balsamikedik og hunangi

  1. Skerið laukinn í langar ræmur 
  2. Bræðið smjörið á pönnu 
  3. Steikið laukinn á pönnu við vægan hita svo hann soðni meira og verði mjúkur og saltið létt yfir 
  4. Bætið við hunanginu og balsamikedikinu þar til allt er orðið mjúkt 

Guacamole 

  1. Skerið belgpiparinn í tvennt og fræhreinsið ef þið viljið ekki loga í munninum.Skerið hann svo næst í örsmáa bita
  2. Stappið avócadóið með gaffli en mér finnst það ekki þurfa að vera alveg maukað, finnst gott að hafa það gróft
  3. Hrærið næst þessu tvennu saman og saltið og piprið eftir smekk
  4. Setjið nokkra dropa af limesafa ef vill og hrærið öllu saman með sýrða rjómanum 

Cheddarostarsósa 

  1. Bræðið smjörið í potti yfir miðlungshita. Sáldrið svo hveitinu yfir og hrærið stöðugt í þar til verður þykkt í c.a 1-2 mínútur.
  2. Bætið svo smátt og smátt mjólkinnni við í pottinn og hrærið stöðugt í á meðan þar til blandan verður þykk, u.þ.b 5 mínútur. Ætti að vera frekar þykk en samt hræranleg
  3. Bætið nú rifna cheddar ostinum í og hrærið stöðugt þar til hann er alveg bráðnaður. Bætið þá í chilisósunni og cayenne piparnum.
  4. Smakkið til og bætið við vel af salti og ögn af pipar og rauða belgpiparnum ef þið notið hann. 
  5. Sósan þykknar síðan mjög við að kólna en hana er hægt að hita svo upp í potti eða örbylgju

Samsetning á tacoinu

  1. Hitið tacobátana í ofni eftir leiðbeiningum 
  2. Skerið niður kínakál, tómata og gúrku 
  3. Setjið allar sósur í skál og skolið baunir í sigti 
  4. Fyllið svo hvern bát með káli, tómötum, gúrku, baunum, jalapeno, salsa sósu,ostasósu og guacamole
  5. Ekki gleyma rauðlauknum 
  6. Setjið quionoa og sýrðan rjóma 
  7. Og fyrir þá sem elska kóríander um að gera að nota það

Punktar

    Ég mæli með að þið notið allt sem ég gef upp á tacoið því þessi samsetning var alveg ofboðslega góð. Ef þið nennið ekki að gera guacamole og ostasósu frá grunni er vel hægt að kaupa það tilbúið í krukkum.
Ljósmynd/María Gomez
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert