Albert kolféll fyrir Kaju

Karen Jónsdóttir eða Kaja eins og hún er alltaf kölluð.
Karen Jónsdóttir eða Kaja eins og hún er alltaf kölluð. Eggert Jóhannesson

Okkar eini sanni Albert Eiríks veit fátt skemmtilegra en að benda samborgurum sínum á staði sem vert er að prófa og nauðsynlegt er að smakka.

Hann var á dögunum staddur á Akranesi þar sem hann mætti til Karenar Jónsdóttur eða Kaju eins og hún er alltaf kölluð. Þar fékk hann meðal annars að smakka á gulrótarkökunni sem hún er löngu orðinn fræg fyrir og féll í stafi.

„Á Akranesi er Karen Jónsdóttir með Matarbúr Kaju sem er með lífrænt vottaðar matvörur bæði eftir vigt og í smásölupakkningum. Café Kaja býður upp á lífrænt kaffi, te og léttar veitingar. Meðal hollra og góðra veitinga á Café Kaja á Akranesi er þessi gulrótaterta. Þið bara verðið að stoppa og fá ykkur sneið," segir Albert og þar sem við hér á Matarvefnum höfum smakkað þessa köku þá tökum við heilshugar undir það.

Ljósmynd/Albert Eiríksson

Gulrótaterta

16 – 20 manna

Tertan er mjög góð glútenlaus en þá notum við bókhveiti í stað hveitis

  • 130 g valhnetur brotnar
  • 300 g pálmasykur
  • 100 g reyrsykur
  • 250 ml ristuð valhnetuolía frá Vigean
  • 4 egg
  • 133 g eplamauk (lífræn epli sett í blandara)
  • 1 tsk vanilludropar
  • 320 g hveiti notið bókhveiti ef tertan á að vera gluteinlaus
  • 1 tsk matarsódi
  • 1 ½ tsk kanill
  • 1 tsk engifer
  • ¼ múskat
  • ¼ negull
  • 260 g gulrætur

Raspið gulrætur niður frekar gróft. Reyrsykur, pálmasykur og egg þeytt saman. Öllum þurrefnum og hnetum blandað saman í skál. Þurrefnum, olía og eplamauk blandað varlega saman við eggjaþeytuna. Bakist í 50-60 mínútur við 150°C. Kælið áður en kakan er skorin í sundur.

Krem

  • 500 g Lífrænn rjómaostur (fáanlegur fljótlega frá Biobú)
  • 300 g smör
  • 175 g flórsykur

Þeytið smjör og flórsykur saman þar til að blandan verður létt, bætið rjómaostinum út í, skiptið í tvennt og setjið á botnana.

Í kaupbæti er hér fróðleikur frá Kaju:

  • Valhnetur og valhnetuolían er ein besta næring sem hægt er að fá fyrir frumur heilans svo og hjarta- og æðakerfi. Valhnetuolía er einnig talin góð fyrir hormónastarfsemina, bólgur og húðina en olían hefur einnig áhrif til lækkunar á blóðþrýstingi. Ristaða valhentuolían frá Vigean gefur tertunni einstakt bragð og áferð og er því ómissandi í þessa uppskrift Olían fæst í Hagkaupum, Melabúinni og Matarbúr Kaju Akranesi.
  • Ógerilsneydd egg eru full af góðri næringu, þau eru góður próteingjafi auk þess sem þau innihalda Vítamín D,
  • B-12 og B-5 sem eru okkur lífsnauðsyn.
  • Gulrætur eru ríkar af Beta-caroten sem lifrin breytir í A vítamín en það er nauðsyn fyrir sjónina og svo eru gulrætur góður andoxari sem heldur okkur ungum lengur.
  • Bókhveiti er ríkt af steinefnum má þar helst nefna magnesíumEpli eru full af pektíni sem er gott við háu kólestróli að ógleymdu C vítamíni.
  • Kryddin eru öll þekkt sem góðar lækningajurtir ýmist notuð sem forvörn eða til lækninga við hinum ýmsu kvillum.
  • Smjörið ríkt af A-vítamín og gefur okkur mikla orku
  • Rjómaostur orka og próteingjafi
  • Óhollustan liggur í sykrinum en þegar góð næring er grunnurinn þó segir líkaminn fljótlega stopp með öðrum orðum það er ekki hægt að borða mikið af þessari. En í einni sneið eru tæplega 28 til 36 grömm af viðbættum sykri en það er minna magn en í einum 100g hlauppoka sem inniheldur enga næringu.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert