Hversu lengi endast plastílát?

Flestir eiga fjölnota plastíát í eldhúsinu sem notuð eru ár eftir ár. En hversu lengi skyldu slík ílát endast og er einhver þumalputtaregla sem hægt er að fara eftir?

Svarið er í stuttu máli nei, en þó er ýmislegt sem ber að hafa í huga. Mestu máli skiptir hversu gott plastið er. Ef það upplitast auðveldlega og rispast strax ertu með fremur lélega vöru í höndunum. Hætta er á að plastið innihaldi efni á borð við BPA, sem þú vilt ekki fá út í matinn. Þess vegna borgar sig alltaf að losa sig við ílát sem farin eru að láta verulega á sjá og vanda valið þegar valið er.

Framleiðendur eru eins misjafnir og þeir eru margir og gott plastílát  eða ílát almennt  er fjárfesting sem ber að vanda sig við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert