Guðrún Sóley hannar nýja veganrétti fyrir Skólamat

Hin geðþekka Guðrún Sóley Gestsdóttir.
Hin geðþekka Guðrún Sóley Gestsdóttir. Kristinn Magnússon

Skólamatur og Guðrún Sóley undirrituðu á dögunum samstarfssamning um framleiðslu á nýjum veganréttum sem munu birtast á matseðli Skólamatar innan skamms.

Skólamatur, sem hefur um rúmlega tuttugu ára skeið sérhæft sig í framleiðslu og framreiðslu á máltíðum fyrir leik- og grunnskólanemendur, býður á hverjum degi upp á tvo aðalrétti, þar af er annar ávallt vegan.

Öllum viðskiptavinum Skólamatar stendur til boða að fá sér veganrétt. Stöðug aukning hefur verið í neyslu á veganréttum á undanförnum árum og daglega eru borðaðir rúmlega 1.000 skammtar af veganrétti. Mikil ánægja er á meðal nemenda og starfsfólks með að eiga kost á því að fá sér veganrétt. Samstarfið við Guðrúnu Sóleyju er liður í því að bæta enn frekar þjónustu við viðskiptavini okkar með meiri fjölbreytni og nýjungum í veganréttum, að því að fram kemur í fréttatilkynningu.

Guðrún Sóley hefur fyrir löngu sannað sig sem ein af fremstu vegansælkerum landsins. Árið 2018 gaf hún út matreiðslubókina Grænkerakrásir sem hefur slegið í gegn. Í júní síðastliðnum hlaut bókin alþjóðlegu Gourmand-matreiðslubókaverðlaunin í tveimur flokkum. Bókin hlaut fyrsta sæti í flokki vegan matreiðslubóka og þriðja sæti í flokki skandinavískra matreiðslubóka.

Jón Axelsson framkvæmdastjóri Skólamatar og Guðrún Sóley Gestsdóttir undirrita samning.
Jón Axelsson framkvæmdastjóri Skólamatar og Guðrún Sóley Gestsdóttir undirrita samning. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert