Ofurkleinuhringir í boði Snorra

Graskerskleinuhringir með kanilsykri eru vinsælir hjá börnum og fullorðnum og …
Graskerskleinuhringir með kanilsykri eru vinsælir hjá börnum og fullorðnum og það ekki að ástæðulausu. mbl.is/Snorri Guðmundsson

Hér eru hjúpaðir graskerskleinuhringir að koma úr ofninum í boði Snorra Guðmunds hjá Matur og myndir. Það verður ekki haustlegra meðlætið með kaffinu en þetta.

„Undirstaðan í þessari uppskrift er hreint graskersmauk frá Libby´s og fæst það í Costco - annars er Hagkaup eða Fjarðarkaup vænlegast til vinnings. Í stað þess að djúpsteikja þessa kleinuhringi þá eru þeir bakaðir í ofni í sérstöku kleinuhringjaformi sem fæst í Allt í köku, en ég hef líka séð það til í Hagkaup.”

Graskerskleinuhringir í boði Snorra (22-24 stk.)

  • Grænmetisolía, 100 g
  • Egg, 3 stk
  • Sykur, 250 g
  • Hlynsýróp, 3 msk
  • Graskersmauk, 340 g
  • Kanill, 1 tsk
  • Engiferduft, 1/4 tsk
  • Múskat, 1/4 tsk
  • Salt, 1,5 tsk
  • Lyftiduft, 1,5 tsk
  • Hveiti, 230 g
  • Forhitið ofn í 170°C með yfir og undirhita.

Aðferð:

  1. Hrærið saman öll hráefnin fyrir utan hveiti með handþeytara þar til allt hefur samlagast.
  2. Hrærið hveitinu saman þar til það hefur samlagast blautblöndunni. Varist að ofhræra blönduna með hveitinu.
  3. Smyrjið kleinuhringaformin með olíu svo kleinurhingirnir losni auðveldar úr formunum.
  4. Fyllið mótin sirka 3/4 leið upp af deigi og bakið í miðjum ofni í 15 mín eða þar til tannstöngull kemur hreinn úr miðju kleinuhringjanna. Látið kólna í nokkrar mín og losið þá úr formunum.
  5. Veltið upp úr kanilsykri og berið fram strax eða hyljið með hreinu eldhússtykki þar til skömmu áður en bera á fram og veltið þá upp úr kanilsykri.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert