Pylsusamloka sem mun breyta lífi þínu

Löðrandi pylsusamloka sem mun bræða í þér bragðlaukana.
Löðrandi pylsusamloka sem mun bræða í þér bragðlaukana. mbl.is/Ethan Calabrese

Ein svaðalegasta samloka síðari ára er hér á borðum – pylsusamloka með haug af cheddar-osti. Fyrir þá sem vilja gera réttinn meira „fansí“ mælum við með að bæta við karamelluðum lauk eða svissneskum osti.

Pylsusamloka sem mun breyta lífi þínu

  • 4 pylsubrauð
  • 2 msk. mjúkt smjör
  • ¼ tsk. hvítlauksduft
  • ¼ tsk. laukduft
  • 4 pylsur, skornar langsum – en passið að skera þær ekki alveg í gegn.
  • 3 bollar cheddar-ostur.
  • 4 vorlaukar, skornir

Aðferð:

  1. Fletjið brauðið með bökunarkefli. Blandið saman í skál, smjöri og kryddum og penslið brauðin að utan.
  2. Hitið pönnu á meðalhita, steikið pylsurnar í tvær mínútur á hvorri hlið og takið til hliðar.
  3. Leggið pylsubrauðin með smjörsmurðu hliðina niður á við og setjið hálfan bolla af cheddar-osti á „þurru“ hliðina. Leggið því næst pylsu ofan á brauðið, smávegis meira af cheddar-osti og ¼ bolla af söxuðum vorlauk.
  4. Setjið lok á pönnuna og leyfið ostinum að bráðna. Notið þá spaða til að loka brauðinu. Endurtakið með allar hinar pylsurnar.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert