Ryan Reynolds bað um óvenjulega afmælisköku

Ryan Reynolds fagnaði afmælinu sínu nú á dögunum.
Ryan Reynolds fagnaði afmælinu sínu nú á dögunum. Mbl.is/skjáskot af Instagram

Hollywoodleikarinn Ryan Reynolds fagnaði 44 ára afmæli sínu nú á dögunum og fékk alls ekki hefðbundna köku frá eiginkonu sinni á afmælisdaginn.

Það var ósk Ryans að fá böku í stað hefðbundinnar afmælisköku, og eiginkona hans Blake Lively varð við þeirri ósk er hún færði honum bökuna með níu kertum á – sem var allt hugsað á léttu nótunum.

Blake Lively, fyrrverandi Gossip Girl-stjarna, birti myndir af eiginmanni sínum á Instagram og varpaði fram tveimur spurningum í leiðinni: „Hvaða týnda sál biður um böku á afmælisdaginn sinn og hvaða dýr borðar bökuna sína án þess að slökkva fyrst á kertunum?“ En á meðfylgjandi mynd má sjá Ryan gúffa í sig kökubita með kertinu ennþá á.

En þetta er ekki allt, því Blake skreytti eldhúsið með vistvænum blöðrum í formi ávaxta með skrautborða um sig miðja. Það vantar í það minnsta ekki upp á húmorinn hjá þessu stjörnupari sem fer ekki mikið út í glamúrinn á afmælisdögum.

Ryan bjóst ekki við því að eiginkonan hans myndi verða …
Ryan bjóst ekki við því að eiginkonan hans myndi verða við þeirri ósk að fá böku í stað köku á afmælisdaginn. Mbl.is/Instagram_Blake Lively
Sumir hafa ekkert fyrir því að slökkva á kertinu áður …
Sumir hafa ekkert fyrir því að slökkva á kertinu áður en þeir taka bita. Mbl.is/Instagram_Blake Lively
Blake Lively, eiginkona Ryan, skreytti eldhúsið með sítrónum í stað …
Blake Lively, eiginkona Ryan, skreytti eldhúsið með sítrónum í stað þess að kaupa blöðrur. Mbl.is/Instagram_Blake Lively
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert