Svívirðilega góður sunnudagskjúklingur

Ljósmynd/Berglind Guðmundsdóttir

Hér erum við með frábæran kjúklingarétt úr smiðju Berglindar Guðmunds á GRGS sem ætti að taka þennan sunnudag upp á næsta stig ... ef ekki lengra.

Kjúklingur með chilíeplum og púrrulauk í hvítvínsrjómasósu

  • 1,2 kg kjúklingalæri, frá Rose Poultry
  • 1 púrrulaukur, skorinn í þunnar sneiðar
  • 3 hvítlauksrif, söxuð
  • 1 dl hvítvín
  • 2 dl kjúklingasoð, frá Oscar (fæst í fernum)
  • 4 msk. rjómi
  • hveiti
  • timían

Eplachutney

  • 4 epli, afhýdd og skorin í bita
  • 1/2-1 tsk þurrkaðar chilíflögur
  • 5 msk. vatn
  • 2 msk. sykur

Setjið allt saman í pott og látið malla við vægan hita í um 10 mínútur eða þar til eplin eru orðin lin.

Aðferð:

1. Veltið kjúklingalærunum upp úr hveiti og kryddið með salti, pipar og timían.

2. Setjið olíu á pönnu og brúnið kjúklinginn á báðum hliðum. Setjið í ofnfast mót og látið eplamaukið yfir. Setjið í 210°c heitan ofn.

3. Hitið olíu á pönnunni og léttsteikið púrrulauk. Bætið hvítlauk saman við og þá hvítvíni. Látið það sjóða niður um helming. Hellið þá kjúklingasoðinu saman við og látið sjóða niður.

4. Hellið soðinu yfir kjúklinginn og þá rjóma. Eldið áfram í 30-40 mínútur eða þar til kjúklingurinn er eldaður i gegn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert