Kjúklingapasta löðrandi í ostasósu

Ljósmynd/Thelma Þorbergsdóttir

Þetta kjúklingapasta með ostasósu er hinn fullkomni fjölskylduréttur sem getur ekki klikkað. „Ostasósan er einstaklega ljúffeng enda inniheldur hún rjómaost með grillaðri papriku og chili,“ segir höfundur uppskriftar, Thelma Þorbergsdóttir, um hana og bætir því við að gott sé að bera réttinn fram með parmesan-osti og hvítlauksbrauði.

Kjúklingapasta í ostasósu

4 skammtar

  • 500 g penne pasta
  • 2 msk. olía af sólþurrkuðu tómötunum
  • 100 g sólþurrkaðir tómatar (sigtið olíuna frá hér)
  • 1 stk. hvítlaukur
  • 3 stk. kjúklingabringur (3-4)
  • 1 stk. meðalstór haus af brokkólí
  • 1 tsk. salt
  • 1⁄2 tsk. paprikukrydd
  • 1⁄2 tsk. chili-pipar
  • 2 dl matreiðslurjómi frá Gott í matinn
  • 200 g rifinn mozzarella frá Gott í matinn
  • 100 g rjómaostur með grillaðri papriku og chili
  • 2 dl pastasoð (vatnið af pastanu)

Aðferð:

  1. Byrjið á því að sjóða pasta eftir leiðbeiningum á pakkningu. Gott er að setja 1 tsk. af salti saman við vatnið.
  2. Setjið olíu af sólþurrkuðu tómötunum á pönnu og steikið hvítlauk og sólþurrkaða tómata í rúmlega 1-2 mínútur. Passið þó að hvítlaukurinn brenni ekki við.
  3. Skerið kjúklingabringurnar í litla bita og steikið saman við.
  4. Kryddið með salti og paprikukryddi.
  5. Saxið niður brokkólí og þegar kjúklingurinn er nánast tilbúinn bætið þið því saman við á pönnuna og steikið þar til kjúklingurinn er orðinn fulleldaður.
  6. Setjið matreiðslurjóma saman við ásamt mozzarellaosti og rjómaosti.
  7. Hrærið þar til osturinn hefur náð að bráðna alveg.
  8. Þegar pastað er soðið þarf að passa að setja soð af pastanu til hliðar til þess að nota í pastasósuna. Gott er að láta kalt vatn renna á pastað svo það hætti að eldast á meðan þið klárið að gera sósuna.
  9. Hellið pastasoðinu saman við sósuna. Ef ykkur finnst hún ennþá of þykk getið þið alltaf bætt meira af soði saman við.
  10. Kryddið með chili-pipar og meira salti ef þörf er á.
  11. Gott er að smakka sósuna til og bæta við hana kryddi ef þess er þörf.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert