Um er að ræða glæsilega villibráðarveislu sem samanstendur af köldum forréttum, heitum aðalréttum og eftirréttum. Varan afhendist köld í fallegum umbúðum með leiðbeiningum um meðferð og upphitun.
Blóðbergsgrafin gæs með aðalbláberjasósu, heitreyktur skarfi með gráðostafrauði, hreindýraterrine með títuberjasósu, gæsalifrarmús með trönuberjum og rauðlaukssultu, léttreyktur svartfugl með sesam-vinaigrette, andasalat með perum, hrefnusalat með trufflum, þurrkuð hreindýrapylsa.
Gæsabringur, svartfuglabringur, dádýrafilet, villisveppasósa, bakað rótargrænmeti, beikonkartöflumús, eplasalat, melónu- og mangósalat, berjasoðnar perur og spergilkálssalat.
Bláberja-, sólberja- og rabarbaraterta.
Allar nánari upplýsingar eru veittar í síma 514-8000 eða á veitingar@grand.is