Endurskíra Rúdolf til heiðurs Þórólfi

Landsmenn flestir þekkja jólaborgarann Rúdolf sem hefur verið fastagestur á Hamborgarafabrikkunni í áratug. Hann hringir inn jólin í nóvember og er að venju í boði á Fabrikkunni á meðan birgðir endast. Nú hefur Fabrikkan ákveðið að þakka Þórólfi Guðnasyni sitt fórnfúsa starf undanfarna mánuði með því að endurskíra Rúdolf í höfuðið á sóttvarnalækninum.

Rúdolf verður Rúdólfur!

„Rúdolf er heilagur hjá okkur á Fabrikkunni. Þessi hreindýraborgari hefur fylgt okkur frá upphafi og kemur í raun með jólin á hverju ári. Okkur fannst, í ljósi alls sem gengið hefur á undanfarna mánuði, vel við hæfi að þakka Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni hans fórnfúsa og góða starf, með því að endurskíra Rúdolf, honum til heiðurs. Hann hefur því fengið nafnið Rúdólfur. Það má eiginlega segja að þetta sé eins og að fá fálkaorðuna frá Fabrikkunni,“ segir Jói, talsmaður Gleðipinna, sem reka Hamborgarafabrikkuna.

Einstakur hreindýraborgari

Rúdólfur er um margt merkilegur jólaborgari. Sjálft hreindýrakjötið er blandað með apríkósum og gráðaosti og glóðargrillað á funheitu grilli. Ofan á kjötið leggst svo trönuberjalauksulta, pikklað rauðkál, klettasalat og bræddur cheddarostur. Rúdólfur er svo borinn fram með sætum frönskum og jólasnjó. 

Rúdólfur er kominn í sölu á Fabrikkunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert